Færslur í flokkinum ‘uppskriftir’

Uppskrift: Pizzudeig

Hef lengi ætlað að setja hingað inn uppskrift að pizzudeigi sem ég hef verið að þróa með dyggri aðstoð veraldarvefsins.

Hráefni:

  • 700 gr hveiti
  • 450 ml vatn (volgt)
  • 1 1/2 – 2 tsk þurrger
  • 1-2 tsk hunang (eða sykur)
  • ca. hálf teskeið salt (má vera örlítið meira)
  • 1-2 msk ólífuolía

Aðferð:
Vatn, Ger og hunang/sykur sett saman í skál, hrært varlega saman og beðið þangað til gerir byrjar að freyða ofan á vatninu.
Hveiti og salt sett í aðra skál á meðan gerið er að vakna, blandað vel saman og búinn til brunnur í miðjunni.
Þegar gerið er vaknað og í stuði er gerblöndunni hellt í brunninn og ólífuolíunni boðið í partíið.
Öllu hrært saman þangað til þetta er komið vel saman.

Hellt úr skálinni á hreint borð og hnoðað vel saman, í 5-10 mínútur. Það er í góðu lagi að bæta við hveiti sé deigið of blautt, bæta bara við
í litlum skömmtum – deigið á að vera örlítið rakt.
Þú veist það deigið er orðið gott þegar áferðin er slétt og það dúar þegar komið er við það með fingri.

Poka skellt utan um skálina og látið hefast á hlýjum stað sem er laus við dragsúg. Ég set það inni í ofn – vitaskuld án þess hann sé í gangi ;o)
Látið hefast í amk 45 mín, eða þangað til að deigið hefur um það bil tvöfaldast að stærð.

Eftir hefingu er deigið tekið úr skálinni og mesta loftið slegið úr því. Gott að berja í það með hnefunum.
Skipt í kúlur, kúlurnar flattar út og af gefinni reynslu er afar gott að láta útflatta deigið hvíla (hefast) í 5-10 mín, en það er þó ekki nauðsynlegt.

Ég bý til 4 kúlur úr þessari uppskrift, þar sem ein þeirra er örlítið þyngri (stærri) en hinar og er brúkuð í brauðstangir.
Hinar kúlurnar flet ég út í ca. 12″.

Mikilvægt:
- Það hefur gefist vel að miða við að hlutfall hveitis á móti vatni sé 60-65%
- Hnoða deigið vel. Það tekur á en árangurinn er vel þess virði.

Njótið.

E.S.: Þú mátt gjarnan láta mig vita í ummælum ef þú prófar þessa uppskrift og segja frá hvernig til tókst :o )

Eplakornflexkaka

Í afmælum og fjölskylduboðum hefur eplakornflexkakan sem Helena útbýr af kostgæfni vakið mikla lukku.

Vegna fjölda áskorana birtum við uppskriftina hér. Verði ykkur að góðu.

Eplakornflexkaka

  • 4 stk epli
  • 1 1/4 dl sykur
  • 1 tsk kanill
  • 1,5 dl hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • 1 1/4 dl mulið kornflex
  • 55 gr brætt smjör
  • 100 gr rjómasúkkulaði eða mars

Eplin rifin og sett í smurt, eldfast mót. Súkkulaði eða mars (eða bæði eins og við gerum stundum) brytjað niður og sett yfir eplin. Helmingi af sykri og kanil stráð yfir. Hveiti, salt, rest af sykri, kanill og kornflex blandað saman og brætt smjör hrært saman við.

Þessu öllu er hellt yfir eplin og sett í 170 – 180°C heitan ofn í 30 mínútur.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE