Færslur í flokkinum ‘tækni’

Boom! Er kominn aftur

Hýsillinn minn í USA fór í kleinu fyrir einhverjum dögum síðan. Serverinn hjá þeim fór niður, gögn skemmdust, þannig það þurfti að setja upp afrit þegar þeir lagfærðu skítinn eftir sig.

Í endurreisnarferli skitu þeir aftur upp á bak og settu upp afrit á svæðið mitt sem enginn veit hvaðan kom. Því kom þessi frábæra síða með textanum “Boom! …and it’s gone” þegar jonoskar.net var kallað fram í vafra.

Það þurfti ekki minna en 2 samtöl við þjónustufulltrúa til að koma hlutunum í lag – að ég fengi allt klabbið upp aftur.

Sem betur fer var ég búinn að vera latur við að uppfæra undanfarið, annars hefði ég líklega tapað einhverjum færslum/myndum.

Eftir þessa bitru reynslu ákvað ég endanlega að færa mig burt frá USA hýslinum (brinkster.com). Ég ætla að hýsa innanlands, jafnvel koma mér upp hýsli heima og sjá um þetta sjálfur. Er búinn að spyrja Gretti félaga minn spjörunum úr varðandi sjálfhýsingu; hann er sjálfs síns herra og hýsir blogg og myndavef sjálfur undir grettir.net.

Þetta setup er orðið sérstaklega freistandi sérstaklega í þessi árferði. Dollarinn hefur hækkað um meira en 100% síðan ég keypti hýsinguna í bandaríkjunum fyrst svo þetta er gráupplagt tækifæri á að spara við sig í upplýsingatæknimálum.

Liverpool leikir 2009-2010 í dagatalið

Liverpool bloggið býður nú upp á niðurhal af leikjum Liverpool þetta tímabilið.

Ég niðraði skránni, bjó til nýtt dagatal í Google dagatalinu (það er hægt að hafa mörg undir einum hatti) og flutti skránni inn í það (import), easy peasy. Nú er engin hætta á að ég missi af leik! Ekki eins og það hafi verið vandamál til þessa ;o)

Frábær fítus í Google dagatalinu er að ég stillti það til að senda mér póst á hverjum morgni um viðburði dagsins. Í dagatalinu eru helstu afmælisdagar og nú, leikir Liverpool.

Færsluna með niðurhalinu á dagatalinu má finna hérna.

GMail í símann

Ég er búinn að vera berjast við að koma GMail forritinu í símann hjá mér, Nokia E65, í langan tíma. Var vitaskuld búinn að leita frá mér allt vit á google en varð ekkert ágengt.

Síminn er reyndar búinn að vera í viðgerð en ég fékk hann loksins til baka í morgun. Reyndi þá aftur að setja gmail forritið upp en varð ekkert ágengt sem áður.

Þúsundasta google leitin skilaði loksins árangri, trixið var að niðra* uppsetningarforritinu á tölvuna, senda það í símann með bluetooth og voila – gjemli kominn með gmail forritið á símann.

Lausnin reyndist falin í athugasemdum hér.

Það er ekki eins og ég þurfi að fylgjast með gmail pósthólfinu til að missa ekki af mikilvægum póstum – gmail í símanum er bara töff.

* snillingurinn og fréttaritari RÚV á Spáni, Kristinn R. Ólafsson, þýddi enska orðið download á þessa vegu.

Uppfærsla – andlitslyfting

Kominn tími á að hressa örlítið uppá vefinn. Fyrir utan augljósar útlitsbreytingar eru aðrar ekki síður merkilegri nýjungar hér.

  • Hægt að gerast áskrifandi að færslum og ummælum hér í gegnum RSS straum – og það alveg ókeypis
  • Allar myndir sem við höfum hengt við færslur er nú hægt að skoða á einum stað, blogg myndir
  • Allar færslur eru nú “taggaðar”, sem ég kýs reyndar að kalla örmerktar og afar þægilegt er að smella á örmerki hér hægra megin á síðunni til að sjá allar færslur tengdar því

Skoðið ykkur um, sendið okkur skilaboð í gegnum Hafa samband eða skiljið eftir athugasemd.

Eins langar mig að biðja lesendur um að láta í sér heyra ef eitthvað má betur fara, hvort sem er varðandi virkni eða útlit.

Snjáldurskjóðan og myndir

Las það á tæknibloggi (nördabloggi) í morgun að Facebook er að innleiða nýtt kerfi fyrir geymslu á myndum á þeim ágæta vef. Ef maður kann tæknilingóið er þessi nýja lausn ansi flott en ég ætla ekki að fara út í þá sálma hér.

Það sem kom mér á óvart er magnið af myndum sem dælt er inn á Snjáldurskjóðuna: ríflega 850 milljón myndir á mánuði! Það gerir um það bil 27.500.000 myndir á dag – rúmlega ein milljón mynda á klukkustund.

Það er alveg hellingur… jafnvel glás.

Google luv

Nýlega uppgötvaði ég hve undursamlega fítusa Google býður uppá. Google er nefnilega ekki bara leitarvél. Hef reyndar lengi vitað af dagatalinu og myndavefnum (Picasa) en fyrir stuttu fór ég að kynna mér betur aðrar þjónustur.

GMail er grunnurinn að öllum þjónustum hjá Google. Ég er búinn að stilla gmeilinn þannig hann sæki póstinn minn frá jonoskar.net. Uppsetning og leit í innboxinu er með eindæmum vel úr garði gerð og viðmótið sérlega hraðvirkt.

Google reader er skylda fyrir þá sem fylgjast með mörgum bloggum. Lesarinn gerir þér kleift að fylgjast með uppháhaldsbloggunum þínum á einum stað; séu þau á annað borð með RSS efnisveitu. Bloggið okkar líður því miður fyrir leti undirritaðs og býður ekki upp á RSS veitu. Ég er þó með nýjan vef fyrir okkur í smíðum sem mun meðal annars bjóða upp á RSS efnisveitu.

Google calendar nota ég meðal annars til að muna hvenær Eva Þórey er í fimleikum og Helena er í skólanum. Skrái þar afmælis-, hátíðis- og aðra merkisdaga. Það er meira segja hægt að láta dagatalið senda sér áminningar í SMS. Mögulegt er að deila dagatalinu með vinum og kunningjum sem hafa gmail netfang.

Google Documents býður meðal annars upp á ritvinnslu, töflureikni (Excel) og glærur. Afskaplega einfalt er að útbúa skjal og dreifa því til dæmis á PDF sniði. Snilldin ein.

Picasaweb er myndavefur en líkt og Flickr er plássið takmarkað fyrir fría reikninga. Ég persónulega nota ekki picasaweb heldur heimasmíðaða myndavefinn okkar. Hægt er að hlaða niður forritinu Picasa á tölvuna sem nýtist afar vel í einfalda myndvinnslu. Picasa er hraðvirkt og býður upp á að hlaða myndum beint á Picasaweb vefinn á einfaldann hátt og þjónar sínu hlutverki vel.

Síðast en ekki síst verður að nefna Google Analytics þjónustuna sem ég nota sem teljara fyrir vefninn okkar. Þjónustan býður upp á gríðarlega fjölbreytta sýn á heimsóknir og hegðun gesta á vefnum þínum. Er skrefi framar en aðrir teljarar, svo sem StatCounter sem ég notaði lengi.

Snilldin við þetta allt saman að um leið og þú hefur skráð þig fyrir GMail netfangi hefur þú aðang að hinum þjónustunum um leið (gæti þurft eitt til tvö skref í viðbót). Og þetta er allt frítt.

Prófaðu Google þjónusturnar, þú munt ekki sjá eftir því.

(Grettir félagi minn deilir aðdáun minni á Google þjónustum.)

Cooliris

Cooliris (áður PicLens) er magnað fyrirbæri. Cooliris er forrit, viðbót við vafra (best í Firefox), sem gerir þér kleift að skoða myndir og myndbönd á þrívíddarvegg. Þekktir myndavefir eins og Flickr og Picasa frá Google styðja þetta forrit auk YouTube og sífellt bætist í flóruna.

Nú hefur myndavefur fjölskyldunnar bæst í þennan myndarlega hóp.

Hafið þér ekki nú þegar Cooliris viðbótina á tölvu yðar hvetjum vér yður til að bæta úr því hið snarasta og sjá dýrðina.

Fyrir þá sem hafa Cooliris:
- Vippið yður á myndavefinn, opnið eitthvað albúm.
- Þegar þér færið músarbendilinn yfir mynd kemur upp lítil táknmynd (icon) yfir myndina.
- Smellið á þessa táknmynd og þá opnast Cooliris og sýnir yður myndirnar í albúminu á títtnefndum þrívíddar myndavegg.

Sniðugt!

Myndin hér að neðan sýnir hvernig tákmyndin kemur yfir mynd þegar músarbendillinn er færður yfir hana.

Allar ábendingar og/eða athugasemdir vel þegnar. Bendum á “athugasemdir” til slíks gjörnings.

 

Fésbók

Eftir gríðarlegan hópþrýsting vorum við hjónin tilneydd að skrá okkur á fésbókina.

Í sannleika sagt hafði ég aldrei trú á þessum social networking dæmi en þetta verður meira spennandi með hverjum degi sem líður.

Ef þú ert skráð/ur á fésbókina (og við erum ekki nú þegar ‘vinir’), leitaðu okkur endilega uppi.

Uppfærsla á albúm vef

Langaði að benda á 2 hressandi nýjungar á myndavefnum okkar.

Þegar mynd er skoðuð hafa bæst við 2 hlekkir neðst í fletti-kassanum hægra megin:

Nánari upplýsingar
Birtir upplýsingar sem eru faldar í myndinni sjálfri. Þar má meðal annars sjá hvers konar myndavél var notuð og margt annað sem ljósmyndanördar (eins og ég) hafa gaman af að skoða.

Skoða með svörtum bakgrunni
Skýrir sig nokkurn veginn sjálft. Þegar smellt er á þennan hlekk er myndin sýnd örlítið stærri og á svörtum bakgrunni, ekkert annað í kring.

Setti inn nýtt albúm, sem inniheldur reyndar bara 2 myndir, en meira mun fylgja á næstu dögum… vonandi.

Andlitslyfting

Komiði sæl og blessuð (sagt eins og Jón Ársæll).

Ég er búinn að vera föndra við að fríska upp á vefinn okkar í nokkurn tíma. Ég þarf einhvern veginn alltaf að breyta til.

Vona það verði jafnskemmtilegt fyrir ykkur að skoða vefinn og áður – eða jafnvel ögn skemmtilegra.

Læt fylgja hérna með grípandi smell með dönsku hljómsveitinni Alphabeat:

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE