Færslur í flokkinum ‘tækni’

Lýðnetið

Hafir þú einhvern tímann leitt hugann að því hvernig lýðnetið (internetið) varð til ætti þetta myndband að varpa einhverju ljósi á það.

Myndbandið var að minnsta kosti ágætis upprifjun fyrir mig.

YouTube Preview Image

Endurmenntaður

Í dag og  næstu tvo daga verð ég á námskeiði á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. David Platt, prófessor við Harvard háskóla, ætlar að kenna mér og einhverjum öðrum Programming Microsoft Prism, the Composite Application Library.

Prism er hlutasafn fyrir WPF (Windows Presentation Foundation) og Silverlight, fókusinn hjá mér verður á WPF-ið.

Hef áður fiktað við Prism og WPF en það fikt nær þó frekar grunnt – vonast til að vinna mér inn svartabeltið á námskeiðinu. Tæknilostinn er í það minnsta geypilegur.

Kóðarýni

Mér finnst þetta fyndið:

(via http://www.osnews.com/story/19266/WTFs_m)

Rainy Mood

http://www.rainymood.com/

Kósí stemmning í heddfónunum. Rainy Mood spilar rigningarhljóð með daufum þrumum í lykkju. Alveg agalega afslappandi.

Ég var kominn með svo agalegan hlandspreng eftir 2 mínútur að ég varð að slökkva :)

Snjókorn falla

Ótrúlega töff myndir af snjókornum sem sýna ótrúleg smáatriði.

http://www.webdesignerdepot.com/2009/12/incredible-examples-of-snowflake-photography/

Google Wave Invites

Mér var að hlotnast 8 16 24 stk invite á google wave.

Ef þú hefur áhuga, settu þá nafn og gmail netfang í athugasemd, og ég skal alvarlega íhuga að senda þér invite.

Ekki setja att merkið, @, ef þú vilt komast hjá ruslpósti. Settu “nafn hjá gmail punktur com”.

21 eftir

Wave leiðbeiningar

Ég fékk aðgang að Google Wave um daginn. Guðni vinnufélagi fékk aðgang sama dag og við gerðum nokkrar prufur en mér finnst enn vanta að geta prófað þetta með stærri hóp. Bíð og vona að mér hlotnist invite til að dreifa en á meðan get ég svo sem gluggað í Wave leiðbeiningarnar sem meistararnir hjá Lifehacker voru að gefa út.

Þetta lítur út fyrir að vera nokkuð spennandi og það er ekki spurning að þetta væri frábært vinnutól í litlu fyrirtæki.

Google Wave

Vinnufélagi minn benti mér á bloggfærslu á mánudaginn var þar sem höfundur bauð upp á boð (e. invite) í nýjasta nýtt frá Google: Google Wave. Google Wave er samvinnutól (e. collaboration tool) sem virkar eins og tölvupóstur, skjöl og spjall – allt í einum pakka. Samskipti eiga sér stað á rauntíma sem gerir þau fyrir vikið mun hraðvirkari en hefðbundinn tölvupóstur.

Ég setti inn athugasemd hjá höfðingjanum sem skrifaði færsluna og bað um invite. Í morgun beið mín póstur í gmail þar sem invite-ið hafði loksins skilað sér.

Hugmyndin á bak við Wave er afar snjöll en vitanlega er Wave-ið gagnslaust ef ég á enga tengiliði. Úr því bætist þegar vinnufélagarnir poppa inn og ég vonast til að fá einhverjum invite-um úthlutað svo ég geti boðið þeim sem ég þekki. Ef heppnin verður með mér og mér hlotnast invite til að dreifa mun ég setja það inn hér.

Þangað til verð ég einn á Google Wave :o )

Settu upp skemmtiþjón heima

Á lifehacker.com má finna alls kyns nýtan fróðleik, þar á meðal ítarlegar leiðbeiningar hvernig setja á upp XBMC media center á tölvu.

Ég má varla við þessu. Veikgeðja gagnvart því sem við kemur tölvum og tækni auk þess sem mig hefur lengi blóðlangað til að setja upp svona “skemmtiþjón” heima. Gallinn á þessum leiðbeiningum er að þetta hljómar allt svo auðvelt. Fyrir utan tölvuna er kostnaðurinn í algeru lágmarki þar sem XBMC er opinn hugbúnaður (frír).

Forvitnir og tækniþyrstir geta skoðað leiðbeiningarnar hér:
http://lifehacker.com/5391308/build-a-silent-standalone-xbmc-media-center-on-the-cheap

Hversu stórt er atóm?

Rakst á þennan link hjá Matthíasi (orvitinn.com, upprunaleg færsla).

Hægt er að súmma myndina inn, alveg niður á atóm. Alveg magnað.

Sjáið sjálf: http://learn.genetics.utah.edu/content/begin/cells/scale/