Hvaða tilgangi þjónar þessi frétt (sjá skjáskot fyrir neðan)?
Hvar er bilun? Jú, einhversstaðar miðlægt! Ekki er bilun hjá mér. Ég get vel tuðað um þetta og bloggað eins og enginn sé morgundagurinn!
Hvaða tilgangi þjónar þessi frétt (sjá skjáskot fyrir neðan)?
Hvar er bilun? Jú, einhversstaðar miðlægt! Ekki er bilun hjá mér. Ég get vel tuðað um þetta og bloggað eins og enginn sé morgundagurinn!
Sumt fólk elskar háu ljósin á bílnum sínum. Þetta pakk virðist vera haldið svo sjúklegri myrkfælni að það skeytir engu um aðra í umferðinni – sama hvort það ekur á eftir bíl eða mætir einum.
Undanfarnar vikur hef ég kynnst þónokkrum úr þessum hópi og í hvert sinn sýður á mér. Þessi skítbuxar gera mér, og öðrum væntanlega, lífið leitt með því að:
Oftast duga blikkin til að viðkomandi lækki ljósin en mér er það gersamlega óskiljanlegt hvernig fólk getur verið laust við alla skynsemi og tillitsemi við samferðamenn í umferðinni ( mamma, krakkarnir eru vondir við mig ;o) ).
Skítbuxar, drullusokkar, fávitar.
Á leiðinni í vinnuna í gærmorgun tók ég fram úr strætó á miklubrautinni. Þegar ég leið fram hjá vagnstjóranum sá ég hvar hann var að púa feitan vindil. Á bak við stýrið, á um það bil 70 km hraða.
Nú átti ég 3 kosti:
A. Taka niður númerið á strætóinum, hringja í Strætó BS og klaga bílstjórann.
B. Ekki hringja í höfuðstöðvar strætó heldur í Reykjavík Síðdegis og kvarta sáran undan reykjandi vagnstjóranum.
C. Hrista höfuðið og glotta að heimskunni í greyjinu.
Hefði ég valið kost A, væri vagnstjórinn jafnvel atvinnulaus í dag.
Hefði kostur B orðið fyrir valinu væri ég samstundis kominn í hóp sem kallaður er “Húsmæður í Vesturbænum”.
C varð augljós kostur.
Eva Þórey fiktaði í næturljósinu sínu, sem er líka vekjaraklukka.
Téð vekjaraklukka hringdi kl. 04:14 í nótt.
Ég reif apparatið úr sambandi og batteríin fengu líka að fjúka úr, til öryggis.
Það var nú samt pínu notalegt að leggjast aftur á koddann og geta sofið 2 tíma í viðbót ;o)
- J
Nýlegar athugasemdir