Þessir hressu krakkar mótmæltu hressilega á Austurvelli með Bengal blysunum sínum.
Til allrar hamingju mundi ég eftir því að síminn minn er útbúinn myndavél.
Fimleikahópurinn hennar Evu Þóreyjar tók þátt í fimleikasýningu laugardaginn 5. desember. Sýningin fjallaði um jólaævintýri Bangsímons og hópurinn hennar Evu Þóreyjar voru í gervi Tuma Tígurs.
Myndin er tekin á laugardagskvöldinu, þegar andlitsmálningin var farin að dreifa sér.
Ásdís Karen þungt hugsi við tölvuna. Sjálfsagt að íhuga hvaða kjól hún skuli velja á dúkkulísuna í leiknum…
Arnór Daði heimtaði að fá að sitja á milli frænkna sinna í matarboði á bakkanum síðasta sunnudag. Hann einfaldlega stíaði þeim í sundur um leið og hann sagði “Má ég sitja hérna?” – alveg eins og herforingi.
Þetta vakti gríðarlega kátínu.
Fékk lánaða 50mm linsu hjá vinnufélaga mínum um daginn. Hef ekki haft mikinn tíma til að prófa hana almennilega en fyrstu prófanir lofa góðu.


Prufu færsla frá flickr.
Fórum í strandferð (fjöruferð) í blíðunni á mánudaginn þar sem þessar myndir voru teknar. Stelpunum fannst þetta afskaplega skemmtilegur gjörningur, ekki síður en okkur. Ég gekk í barndóm og upplifði gamla daga; prílaði upp á melgresis þakta sandhólana og hoppaði niður í mjúkan sandinn. Var sveittur og andstuttur eftir á – hvernig væri nú að reyna koma sér í annað form en kringlótt?



Nýlegar athugasemdir