Færslur í flokkinum ‘heilsa’

Veikur

Ásdís Karen var ekki fyrr staðin upp úr pestinni sem hún var með þegar gamli lagðist eins og rakki í bælið.

Mér leiðist afskaplega að vera veikur.

Eva Þórey veik

Eva Þórey vakti okkur með látum í nótt með æluna í hálsinum. Ég rétt náði að henda henni útúr rúminu áður en fyrsta gusan kom. Gusa númer tvö fór sem betur fer í baðkarið.

Hún gubbaði tvisvar sinnum eftir þetta og er gubbupestin því sannreynd, ég var að vona að fyrsta tilfellið hefði bara verið það eina en því var ekki að fagna. Ekkert okkar var tilbúið að vakna þegar klukkan hringdi í morgun.

Það er svolítið fyndið að þegar Ásdís Karen vaknar svona upp á næturnar fær hún alveg makalausa munnræpu – þarf að ræða allt milli himins og jarðar :o )

En varið ykkur, þetta ógeð er víst eitthvað að ganga.

of næmur

Ég er með alveg glás af næmi fyrir frjókornum núna. Klæjar í augun og þau orðin rauð eins og epli og ég hnerra í akkorði – vaknaði meira að segja í nótt hnerrandi. Ofan á þetta snýti ég fleiri lítrum af vessum yfir daginn svo risavaxið nefið er orðið þurrt og aumt.

Held að Lóritínið sé hætt að virka eins og það gerði fyrr í sumar. Fór því í apótekið áðan og keypti önnur lyf fyrir þúsundir króna til að prófa; Kestine töflur og Livostin augndropar.

Komið rúmt kortér síðan ég dreypti í augun á mér og svei mér þá, held ég sé allur að koma til. Vona það alltént.

Uppfært 23:45:

Jú, ég er bara orðinn helvíti góður – þökk sé lyfjavísindum. Það hefur dregið umtalsvert úr snýtingum og hnerrum, augun meira að segja búin að vera til friðs.

Vöðvabólga

Undanfarna daga og vikur hefur vöðvabólga í hálsi og herðum verið að byggjast upp. Vaknaði með dúndrandi hausverk á sunnudagsmorgun, dæmigerðan þynnkuhausverk þrátt fyrir að hafa ekki drukkið dropa af áfengum vökva á laugardagskveldinu.

Nú get ég varla hreyft höfuðið.

Hver stendur eiginlega fyrir þessu?!