Færslur í flokkinum ‘gullmolar’

Hermikráka

Ásdís Karen hermir eftir eldri systur sinni í einu og öllu – eins og litlu systkina er von og vísa.

Ég spurði systurnar einhverrar spurningar í vikunni, þar sem viðbúið svar ætti að vera nei.

Eva Þórey svaraði: “Leyf mér að hugsa… öööö nei!”.

Ásdís Karen apaði eftir systur sinni en gaf sér þó tíma til að hugsa svarið:
“Leyf mér að hugsa….








öööö nei!”

Vont veður

Úti er rok og rigning.

Fyrir ekki svo löngu síðan vorum við heima við og það hvessti frekar snögglega.

Ásdís Karen fann sig knúna til að tilkynna okkur um veðrabrigðin:

“Æji, það er byrjað að roka” :o )

Litlu hlutirnir skipta máli

Í gær fékk Ásdís Karen boðskort í afmælisveislu inn um bréfalúguna. Þegar mamma hennar las boðið fyrir hana ljómaði hún eins og sól í heiði. Fyrsta alvöru afmælisboðið orðið staðreynd.

Hún minnti okkur reglulega á þetta í gærkveldi, alveg þangað til hún sofnaði. Við morgunverðarborðið tók hún sér pásu frá kornfleksinu þegar hún mundi eftir gærdeginum, brosti útað eyrum og sagði: “Ég er að fara í afmæli til Gígju!”.

Afmælisboðskort til lítilla hnáta er nefnilega svipað og við fullorðnu fengjum boð í partý þar sem vel væri veitt af fríum veigum og Weezer spilaði fyrir dansi.

Eða svo ímynda ég mér alltént.

Hlutverkaleikur

Ég var að þrífa inn í eldhúsi í gær og þá kemur Eva Þórey til mín og bankar á ísskápinn. Hún er oft í hlutverkjaleikjum og oftar en ekki fæ ég lítið hlutverk. Í þetta skipti var hún að banka hjá mér því ég var dagmamman sem átti að passa barnið hennar. Ég tek við barninu og set það við eldhúsborðið og held áfram að þrífa. Svo auðvitað er ég dottin út úr leiknum og fer að þrífa inn í svefnherbergi…kemur ekki Eva Þórey askvaðandi með miða í höndunum og setur í rassvasann hjá mér og segir: Þú skalt sko lesa þennan miða.

Á miðanum stóð:

akverju fórstu frá barninu mínu

seigðu já eða nei

kígdu hinumeigin

ég kíki hinu megin á miðann og þar stóð:

kvar ertu

kveðja

Silíja Smile

Ég sem sagt steingleymdi barninu sem ég átti að vera að passa og Eva Þórey var nú ekki par hrifin. Þannig að það er spurning hvort ég sé á réttri hillu starfslega séð…hehehe Smile Ég held ég fái alla vega ekki að passa dúkkurnar hennar Evu Þóreyjar í bráð.

Leiðin að hjarta barns

Við Ásdís Karen vöknuðum á undan öðrum fjölskyldumeðlimum í morgun.

Ég tók til skálar, skeiðar, mjólk og morgunkorn og setti á eldhúsborðið.

Þegar sú stutta sá að á borðinu voru m.a. Coco Pops og Lucky Charms leit hún djúpt í augun á mér og sagði: “Góður pabbi”.

Jahá.

Klossi og Dóra

Dóra landkönnuður er í miklu uppáhaldi hjá Ásdísi Karen. Um daginn var hún að horfa á einn þáttinn og tryggur aðstoðarmaður Dóru, hann Klossi, bað áhorfendur um að standa upp. Það lá nefnilega eitthvað mikið fyrir.

Ásdís Karen hlýddi kallinu eins og skot og stóð upp eins og elding.

Þegar Klossi gargaði í þriðja skiptið að krakkarnir yrðu að standa upp gargaði Ásdís Karen á móti:

“Klossi! Ég er búin að standa upp!!!!” :o )

Oft finnst mér eins og Klossi og Dóra sé komin inn í stofu til hennar, innlifunin er slík.

Ósanngjarnt

Ég er tölvufíkill. Og það sem meira er, ég er internetfíkill.

En þegar 2ja ára telpa með biðjandi augu kemur til mín og segir: “pabbi, má ég horfá bangsímon og gíttlíng*… plíííííss??” þá kemur ekkert annað til greina en að setja Bangsímon mynd af stað í tölvunni.

Ég er gersamlega varnarlaus þegar sú stutta dregur þennan ás úr erminni – þetta er ósanngjarnt.

- J

* gíttlíngur = gríslíngur

Glæpaskeggur

Þennan morgun sem aðra, vorum við Eva Þórey að gera okkur klár fyrir vinnudaginn. Hún klæddi sig í skóna, úlpuna og smellti loks á sig lambúshettu. Þegar lambúshettan var komin á sinn stað sagði hún vígreif:

“Ha ha, nú er ég eins og þjófur!”

“Eins og þjófur!?!” Át pabbi hennar upp eftir henni.

“Já pabbi, eins og þjófur. Veistu hvað þjófar heita líka pabbi?”

“Nei.”

“Glæpaskeggar.”

“Glæpaskeggar???”

“Já.”

Forviða faðirinn spurði einskis meir.

Bréf til Arons Elvars

Svo skrifar heimasætan:
 
“Aron Elvar, ég er á nýjum leikskóla og þú líka, er búin að fá nýjan bíl og líka með pakka. Ásdís Karen fæddist í júní og svo bara…. líka Kristjana Eir fæddist í júní (leiðrétting ritara: Kristjana Eir fæddist í Apríl.).
 
Kveðja,
Þín Eva Þórey”

EvaÞóreyska

Nokkur hugtök úr Orðabók Evu Þóreyjar:

Reykjari
- Sígaretta

Idol snakk/Idol matur
- Doritos snakk

Dúkað mál
- Bókað mál

Birgittu nammi
- Rís, súkkulaði

Þorlákshöfn, Keflavík og Eyrarbakki
- Húsin þar sem afi og amma eiga heima

Jónsa nammi
- Draumur, súkkulaði (góður draumur maður)

Neglari
- Hamar

Að byssa
- Að skjóta

Skjótumynd
- Kvikmynd sem bönnuð er börnum

Kleisí Plasthaus
- Crazy Bastard (lagið með Audda, Sveppa og Pétri + Quarashi)

Hálmíling
- Hárnæring

Umþvottavél
- Uppþvottavél

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE