Færslur í flokkinum ‘ferðalög’

Útilegur og Gæsun

Jæja, nú erum við búin að fara í tvær útilegur og erum við algjörlega komin með útilegudellu. Fyrri helgina fórum við í Laugarás en Ómar og Jessý og Gestur og fjölskylda komu með okkur. Þetta var svakalega fín helgi og ágætisveður fyrir utan smá úrhellir á laugardeginum. Við fórum tvisvar í sund í Reykholti og var Eva Þórey alveg í skýjunum með það. Einn daginn þegar við vorum á leiðinni í sund þá var Eva Þórey máluð en hún fékk smá maskara, augnskugga og gloss hjá Jessý. Allt í einu segir hún við systur sína aftur í ,,Þetta er allt í lagi Ásdís mín, þú þarft ekkert að vera hrædd, þetta er bara hún Eva Þórey systir þín, ég er bara máluð”. Við vissum ekki hvert við ætluðum við grenjuðum svo úr hlátri. Henni fannst hún svo breytt að hún var alveg viss um að systir hennar myndi ekki þekkja hana.

Seinni helgina tjölduðum við hjá Seljalandsfossi eða í Hamragörðum. Ekkert smá flott tjaldsvæði og allt svo flott í kring. Gestur og fjölskylda vorum með í för ásamt Grétari og Júlíönu og Guðna Gesti og krökkum. Í þessari ferð var ýmislegt skoðað og byrjuðum við á því á laugardeginum að skoða Skógarfoss en hann er ekkert smá fallegur. Þegar leið á daginn ákváðum við vegna hvassviðris á tjaldsvæðinuað fá okkur rúnt inn í Þórsmörk. Við fjölskyldan fengum að fljóta með Gesti á hans jeppa og var þetta ekkert smá skemmtileg og ævintýraleg ferð. Á laugardagskvöldinu var svo varla hægt að grilla út af roki en það tókst á endanum og fengu allir hálfgerða miðnætursteik.

Þessa helgi tókum við svo frí frá útilegum þar sem ég var að gæsa Heiðu systir en hún er að fara að gifta sig 28. júlí. Þetta var alveg frábær dagur og grunaði hana ekki neitt sem betur fer. Við biðum í grasagarðinum eftir henni þar sem Egill náði að plata hana þangað til að skoða hugsanlega brúðarmyndatöku. Heiða var ekkert smá hissa að sjá okkur þar og var henni efst í hugsun þegar hún sá okkur .. hvað eru þær að gera hér saman, þvílík tilviljun”, datt ekkert í hug að við værum að gæsa hana. Fórum svo með hana á miðilsfund og svo í Bláa Lónið í nudd og fínerí. Enduðum svo hjá Rakel vinkonu Heiðu í grilli og fjöri.

Vorum að setja inn myndir í albúmið. Skuldum enn nokkuð þangað inn – en það kemur!

Jómfrúarferð

Nú er legið öllum stundum á bæn um gott veður um helgina. Ætlunin er að fara í fyrstu útilegu sumarsins, reyndar fyrstu útilegu í dágóðan tíma, í nýja fellihýsinu. Við erum búin að vera græja vagninn smá saman og þegar úbbartstækið og hátalarnir eru komnir í fer allt að verða klárt. Ef allt gengur upp fáum við fortjald á fellihýsið fyrir helgina og þá ætti ekki að væsa um okkur. Þá er bara eftir að finna gott tjaldsvæði í hæfilegri fjarlægð frá Ölfusborg (Þorlákshöfn), einhverjar uppástungur?

Við héldum uppá 2ja ára afmæli Ásdísar Karenar síðustu helgi. Góð mæting og baksturinn tókst vel þannig við erum hæstánægð með teitið. Ásdís Karen fékk fjöldan allan af pökkum og fékk dygga aðstoð Evu Þóreyjar við að fjarlægja gjafapappírinn. Þökkum er hér með komið á framfæri við þá sem komu í afmælið eða sendu henni kveðju hér á vefnum.

Veiðiferð

Það var heldur betur stuð um síðustu helgi hjá okkur. Á meðan mamma fór í óvissuferð með Heiðarborg fórum við pabbi austur fyrir fjall í veiði. Amma og afi voru með Volann á leigu og ákváðum við pabbi að kíkja á þau og athuga hvort ekki væri hægt að krækja í fisk á grillið.

Þetta var á laugardegi sem við fórum og um leið og við mættum á svæðið voru veiðistangirnar græjaðar og reynt að gabba fisk til að bíta á. Reyndar var svolítið skemmtilegt að rekast á mömmu í innsveitum suðurlands – þá voru þær á Heiðarborg akkúrat í óvissuferð á sömu slóðum og við pabbi vorum að veiða!!

Enginn fiskur kom á land hjá okkur pabba á laugardeginum en amma og afi fengu 3 fiska. Þrátt fyrir dræma veiði var það afar þreytt stelpa sem fór að sofa í veiðikofanum á laugardagskvöldið.

Sunnudagurinn var tekinn snemma, við vorum mætt út í á rúmlega hálf tíu og var atast í henni eitthvað fram eftir degi. Það var þó um þrjú leytið sem að það beit fiskur á öngulinn minn!! Afi hafði hjálpað mér að kasta út í og hann hjálpaði mér líka við að draga fiskinn að landi. Ég lét líka afa alveg um það að losa fiskinn og handleika, var ekki par hrifinn af þessum spriklandi fiski!

En fyrsti fiskurinn kominn á land og í veiðibækur fjölskyldunnar í mínu nafni og það er víst að þeir verða fleiri í framtíðinni. Ég vona bara að hann pabbi fari að draga mömmu líka með í veiðiferðir, þetta er nefnilega alveg svakalega gaman!!

bless í bili,
Eva Þórey

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE