Færslur í flokkinum ‘ferðalög’

Las Vegas

Mynd: roadsidepictures (á Flickr)

Á föstudaginn flýg ég frá eldfjallaeyjunni Íslandi til fyrirheitna landsins í vestri. Áfangastaður: Las Vegas.

Fyrir um það bil einum og hálfum mánuði síðan var ákveðið að ég færi á tölvunördaráðstefnuna DevConnections – þar sem Microsoft Visual Studio 2010 verður formlega lúnkað. Fyrstu dagana eftir mér var tilkynnt þetta lá mér við undirmigu að spenningi. Ég lá yfir korti af Vegas á Google Maps, skoðaði túrista upplýsingar og stúderaði The Hangover þangað til þráhyggjan jaðraði við hreina geðveiki.

Svo slakaði ég á….

Nú kortér í ráðstefnu er spenningurinn farinn að ágerast og hið forljóta andlit þráhyggjunnar komið aftur á stjá. Það hjálpar ekki að við þrjú sem erum að fara redduðum okkur miða á tónleika í Vegas – tónleika sem fyrir löngu er uppselt á. Og þetta eru engir smá-tónleikar; Muse spila fyrir dansi og krakkarnir í Silversun Pickups hita mannskapinn upp. Úff… Þetta. Verður. Mega.

Ráðstefnan er haldin á Bellagio hótelinu þar sem við gistum. Við hliðina á Bellagio er Caesars Palace hótelið þar sem kempurnar í Hangover sýndu okkur hvað Davíð keypti ölið. Það verður sem betur fer ekkert taxa- eða rútuvesen á milli hótels og ráðstefnu eins og þegar ég fór á PDC ráðstefnuna í Los Angeles 2005. Við vorum búin að ráðgera að leigja okkur bílaleigubíl og taka rúnt að Grand Canyon en þar sem það ku taka nánast heilan dag í framkvæmd er líklegt að við látum okkur nægja að skoða Hoover stífluna.

Útilega 2009 – 2: Hrífunes og Hellishólar

Sumarfríið var rétt skollið á þegar búið var að krækja fellihýsinu aftan í jálkinn og haldið út úr bænum. Fórum sumsé strax á miðvikudagsmorgun í austurátt og áðum við Hrífunes sem er um það bil 15 kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri. Ragna og Beggi voru þar í bústað og við fengum að parkera fellihýsinu hjá þeim. Umhverfið er meiriháttar þarna; lækur sem rennur rétt hjá bústaðnum þar sem krakkarnir dunduðu sér daglangt við að reyna veiða síli. Við Beggi príluðum upp gilið þaðan sem lækurinn rennur úr – svöluðum þorsta og kældum okkur í svölum læknum. Geggjað.

Myndavélin fór í kleinu og hætti að virka strax á fyrsta degi. Bilun. Skjárinn sagði “Error: Press shutter release button again”. Ég tók linsuna af og sá að spegillinn sat fastur uppi, var ekki skemmt. Vorum búin að taka 144 myndir (einhverjar hreyfðar þó og þeim verður hent), get aðeins ímyndað mér hversu margar þær hefðu orðið ef vélin hefði ekki bilað. Ég er búinn að vera ótrúlega sár og svekktur út af þessu. Sem betur fer fengum við litla Canon Ixus 50 vél lánaða hjá tengdó svo við tókum einhverjar myndir til viðbótar en þær voru ekki margar. Það er gríðarlegur gæðamunur á myndum sem koma úr þessum tveimur vélum.

Tókum upp og rúntuðum á Hellishóla á föstudag. Snjólaug og Kalli sem höfðu líka verið í bústaðnum fyrir austan með okkur sóttu fellihýsið sitt á Bakkann og tjölduðu líka. Þegar ég var að tjalda fellihýsinu sá ég að einn af stoðfótunum fjórum vantaði. Fátans fóturinn hafði farið undan einhversstaðar á leiðinni frá Hrífunesi og að Hellishólum. Til allrar hamingju fann Helena fótinn á sunnudagsmorgun. Hann hafði dottið af á tjaldsvæðinu, einhver fundið hann og stillt upp við salernisaðstöðuna.

Dagurinn í gær var því nýttur í að koma tjónuðum hlutum í viðgerð; myndavélin fór í bæinn (fáum hana vonandi á morgun, miðvikudag) en fóturinn undan fellihýsinu fór á verkstæði hér í bæ (fór áðan og hann var tilbúinn).

Næst á dagskrá er ættarmót á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Er að vona að myndavélin verði tilbúin áður en við förum á fimmtudag.

Útilega 2009 – 1: Úlfljótsvatn

Vorum mætt rétt fyrir fimm á tjaldsvæði Skáta við Úlfljótsvatn, skoðuðum svæðið og ráðfærðum okkur við tjaldvörðinn áður en tjaldbúðir voru reistar. Vildum forðast mýið í lengstu lög svo við völdum tjaldstæði fjærst vatninu, steinsnar frá veginum. Nýja grillið stóðst væntingar og skilaði börgerum og pylsum af sér með stakri prýði.

Renndum fyrir fisk í blíðunni á laugardaginn en varð ekki kápan úr klæðinu – þrátt fyrir að nánast geta teygt okkur í bleikjuna sem svamlaði glottandi fyrir framan nefið á okkur. Varð fyrir því óláni að brjóta flugustöngina þegar ég skipti um flugu sem var slæmt því við hliðina á okkur voru tveir veiðimenn sem mokuðu upp bleikjunni á flugu með tökuvara. Þarf að leggjast í rannsóknarvinnu á nýrri flugustöng; trausta en ódýra.

Ásdís Karen vaknaði á aðfaranótt sunnudags með bullandi hita og var ákveðið að taka saman eftir morgunmatinn og fara heim. Kom sér vel að fara snemma og losna við traffíkina sem myndaðist síðar um daginn. Verra er að þegar við vorum búin að pakka fellihýsinu saman og ætluðum að snúa því brotnaði nefhjólið af beislinu. Við Gestur gátum ekki lyft beislinu tveir en til allrar hamingju fengum við hjálp frá tjaldnágrönnum við að rúnta hýsinu á krókinn. Annað tjónið í ferðinni en ég ætti að geta rúntað með vagninn á verkstæði í Þorlákshöfn og fengið nefhjólið soðið á beislið aftur – þar sem það á að vera.

Stefnum á útilegu aftur næstu helgi ef Ásdís Karen verður búin að ná sér að fullu.

Breytt 17:51:

Fór á verkstæðið og nefhjólið var rafsoðið á beislið. Beið á meðan enda var náunginn snöggur að þessu. Þurfti engu síður að borga fimm þúsund krónur fyrir viðvikið – ansi gott tímakaup á þeim bænum.

Brunaæfing í Glasgow

Sunnudagurinn í Glasgow var eftirminnilegur. Við vöknuðum snemma og röltum út í Somerfield að kaupa í morgunmatinn, eins og við gerðum alla morgnana. Komum hins vegar að læstum dyrum og uppgötvuðum okkur til mikillar gleði að vetrartíminn hafði gengið í garð um nóttina og við því vaknað í raun klukkutíma of snemma.

Skömmu fyrir klukkan ellefu fóru brunabjöllurnar að æpa hver ofan í aðra. Ég kíkti fram á gang en sá öngvan en svona til öryggis ákváðum við að rölta okkur niður stigann (“DO NOT USE IN CASE OF FIRE” miði á lyftunni) af elleftu hæð. Hittum fyrir aðra hótelgesti sem voru jafn hvumsa og við.

Líkt og dagana á undan var mígandi rigning og var því hótelgestum, þar á meðl okkur, smalað saman í skjól undir brú við hlið hótelsins þar sem við biðum átekta. Í hópnum voru mis-vaknaðir hótelgestir en allir tóku uppákomunni með stakri ró.

Vitanlega var slökkvilið Glasgow borgar kallað á staðinn sem rannsakaði vettvang gaumgæfilega.

Í ljós kom að sennilega hafi einhver kveikt sér í sígarettu inn á herbergi sem hrundi atburðarásinni af stað. Yndislegt.

Síðar sama dag horfðum við á Liverpool – Chelsea á hótelpöbbnum þar sem Liverpool unnu sigur. Það var afskaplega notalegt.

 

Slökkvibifreið fyrir utan Jury’s Inn hótelið.
Ef myndin prentast vel sést í Helenu gægjast fram hjá regnhlíf.

 

Edinborg

Skruppum til Edinborgar sl. föstudag (þegar við vorum í Glasgow auðvitað), þar sem þessi mynd var tekin. Fiktaði við hana í myndvinnsluforriti og fannst þessi útgáfa koma nokkuð vel út.

Dulúðleg og seiðmögnuð.

Verslunarmannahelgin

Frænkurnar í Slakka, Laugarási


Þá er þessari verslunarmannahelgi lokið. Við byrjuðum helgina á því að fara í einnar nætur útilegu í Laugarás með mömmu, Kalla, Heiðrúnu og stelpunum hennar. Fengum líka þetta frábæra veður þar og skemmtum okkur konunglega. Á laugardeginum skunduðum við heim þar sem nóg var að gera hjá tengdó í Mánanum. Jón Óskar fór að hjálpa til þar sem allir landsmótsgestir voru svona líka svakalega hungraðir að pizzurnar ruku út. Við sáum lítið af Jóni Óskari það sem eftir lifði af helginni. Við mæðgur vorum bara á rölti um mótssvæðið ásamt mömmu og co. og enduðum með því að grilla á sunnudagskvöldið heima hjá Rögnu og Begga. Annars var þetta mjög róleg helgi, hjá okkur mæðgum alla vega.

Núna tekur svo við fjörug vika þar sem það er nánast korter í brúðkaup…þetta er bara að bresta á.  Það er ýmislegt sem við eigum eftir að gera og á það náttúrulega allt eftir að reddast í þessari viku…eða það er alla vega bara best að hugsa það þannig.Wink

Ein farin að finna fyrir smá stressi

Ættarmót

Um nýliðna helgi var skundað á ættarmót vestur á Snæfellsnes, nánar tiltekið í Langaholt. Reyndar fóru Jón Óskar og Eva Þórey bara tvö þar sem Ásdís var veik. Þannig að við mæðgur vorum bara tvær heima í kotinu á meðan. Þetta var víst mjög skemmtileg ferð eins og við mátti búast. Á laugardeginum tóku þau smá rúnt með Grétari og Júlíönu til að skoða sig um í nágrenninu. Þau fóru meðal annars á Arnarstapa, skoðuðu Sönghelli þar fyrir ofan og enduðu svo í Lýsuhólslaug. Veðrið var auðvitað alveg frábært þessa helgina og komu þau því brún og sælleg heim í gær.

 Erum búin að vera svaka dugleg að setja inn nýjar myndir, endilega kíkið á þær og verið svo dugleg að kvitta Wink

Kveðja, Helena

Fyrsta útilegan í sumar

 

Við fjölskyldan skruppum í okkar fyrstu útilegu þetta sumarið um síðustu helgi. Við fórum ásamt bræðrum hans Jóns Óskars og fjölskyldum í Þjórsárdalinn. Við vorum ekkert smá heppin með veðrið á laugardeginum því það var sannkölluð blíða allan daginn. Við fórum auðvitað og skoðuðum aðeins þarna í kring eins og Hjálparfoss og Gjánna. Það er ekkert smá fallegt að koma þangað. Skruppum svo í sund í gömlu Þjórsárdalslauginni sem var heitari en venjulegir heitir pottar, þannig að við stoppuðum stutt við þar. Fengum svo ekki einu sinni sturtu eftir sundið þar sem það varð kaldavatnslaust og ekki nóg með það, klefarnir voru fullir af hestadrullu þar sem laugin var full af hestafólki, þannig að við fórum haugskítug til baka á tjaldstæðið eftir þessa sundferð.

Um næstu helgi förum við svo á ættarmót vestur í Langaholt og erum við strax farin að hlakka til.

 

Hamragarðar Part Deux

Fórum í útilegu síðustu helgi með Gesti, Dai og fjölskyldu til Hamragarða sem við heimsóttum fyrr í sumar. Fengum príma tjaldstæði við lækinn sem rennur úr Gljúfrafossi (Gljúfrabúa) í fínu skjóli fyrir vindum. Lögðum í hann á laugardagsmorgun og rúntuðum fyrst í Fljótshlíðina en þegar ljóst var að þar var lítið skjól hörfuðum við og ákváðum þess í stað að á við Hamragarða.

Á laugardagskvöldið fylgdumst við með flugeldasýningunni á Þjóðhátíð í Eyjum og fengum brekkusönginn á sunnudagskveldinu nánast í beint í æð – þar sem ábúendur á einkajörðinni við hliðina blöstuðu beinu útsendinguna á Rás 2 í fínu græjunum sínum. Kíktum í sund á Hvolsvelli og ef ég væri sardína hefði mér sjálfsagt liðið vel í yfirfullum pottunum en svo var ekki og við stoppuðum stutt við.

Hotpoint þvottavélin gaf upp öndina fyrir helgi eftir aðeins 6 ára þjónustu. Eftir eilíft vesen á vélinni tímdum við ekki að borga áætlaðan viðgerðakostnað svo það var tekin ákvörðum um að festa kaup á nýrri. Fyrir valinu varð forláta Siemens þjarkur en fyrir eigum við heimasíma og ísskáp af sömu sort sem hafa ekki enn slegið feilpúst (sjö níu þrettán).

Hafnardagar í Þorlákshöfn um helgina og hellingur að gerast. Dagskránna má skoða hér.

Hef verið með nostalgíu undanfarna daga og verið með Carcass í heddfónum í vinnunni. Má ekki hlusta á svona ruddarokk heima ;o) Annars get ég mælt með Zeitgeist með Smashing Pumpkins og Our Love To Admire með Interpol - hressandi skífur báðar tvær.

- jón óskar

Útilegur, brúðkaup, stangveiði

Well, búið að fara í 4 útilegur í sumar; Laugarás, Hamragarðar (hjá Seljalandsfossi), Flúðir og nú síðast í Þjórsárdalinn. Allar mega næs og veðrið vitaskuld búið að vera frábært, reyndar rigndi örlítið í Laugarás og helgina sem við vorum í Hamragörðum var moldrokið mikla á suðurlandi.

Erum búin að skoða 4 fossa á ferðalögum okkar; Seljalandsfoss, Glúfrabúa (í Hamragörðum), Skógafoss og Hjálparfoss (Þjórsárdal) og eru stelpurnar alltaf jafn spenntar yfir þessum fossa-skoðunum.

Það var alltaf á planinu hjá okkur að ferðast norður á land í sumar en sökum veðurblíðu á suðurlandi hefur það mátt sitja á hakanum, sjáum hvernig setur með næstu daga.

Engin útilega um helgina. Á morgun, laugardag, förum við Helena í brúðkaup Heiðu og Egils. Þau eru reyndar búin að vera gift í tæpt ár en þetta er the real thing – kirkjubrúðkaup og alles.

Erum að brjóta heilann um það hvert við förum um verslunarmannahelgina. Grunar það verði ekki skipulögð útihátíð heldur samvera fjölskyldunnar á kósí stað þar sem jafnvel er hægt að skjótast í veiði.

Fór í Ölfusárós með pabba og Gesti á mánudaginn í fyrstu veiði sumarsins og fékk 2 sjóbirtinga, hálft pund og 2,5 pund. Ætla að reyna gera betur í ár en þessa einu ferð í Þingvallavatn síðasta sumar.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE