Færslur í flokkinum ‘dagbók’

Eldgos?

Eins og aðra morgna vaknaði ég við ljúfan hljóminn úr útvarpsvekjaranum. Í svefndrunganum teygði ég mig í OFF takkann en hætti snarlega við þegar eyrun vöknuðu.

Í útvarpinu var nefnilega verið að ræða við bónda á Skeiðum þar sem hann lýsti því hvernig glóandi hraunið rann úr fjallinu. Bein útsending? Ég glaðvaknaði og fór að bölva því að sennilega myndi ég ekki sjá í fjallið í þessu skyggni, rigning barði nefnilega á svefnherbergisrúðunni.

Allt var fyrir bý þegar karlmannsrödd tilkynnti að það væri ekkert eldgos í gangi, viðtalið var nefnilega tekið þegar Hekla gaus árið 1991.

Viðurkenni að ég var fyrir pínulitlum vonbrigðum.

Breytingar á vef

Ég tók mig til í dag og skipti um hýsingaraðila og blogg kerfi. Sagði bless við BlogEngine.NET og hæ við WordPress því það er kerfið sem allir svölu krakkarnir nota :)

Keypti hýsingarþjónustu hjá 1984.is og verð að hæla þeim fyrir framúrskarandi þjónustu. Gekk frá pöntuninni í morgun og um sex leytið í dag var allt orðið klappað og klárt.

Færði póstinn í leiðinni í Google Apps þannig að núna kemur allur póstur í GMail-líku viðmóti (en Helena notar þó Mozilla Thunderbird). Ég er reyndar búinn að vera nota GMail í einhver ár, lét hann sækja póstinn af jonoskar.net léninu, en nú gerist þetta bara beint! Póstur sendur á jonoskar (hjá) jonoskar (punktur) net kemur beint í ofursvala, undurlétta, frábæra Google Apps án nokkurra klækja eða launráða.

Myndirnar fá nú ótakmarkað rými á Flickr-inu mínu auk þess sem ég get sett inn myndbönd líka. Nánari upplýsingar um myndirnar koma síðar.

Vefurinn er ekki tilbúinn, það vantar sennilega flestar eða allar  myndir við færslurnar, ég týndi einhverjum athugasemdum, permalink strúktúrinn ekki eins og ég vil hafa hann (inniheldur index.php)  og sitthvað fleira á örugglega eftir að koma í ljós.

Uppfært 20. janúar 10:48:
Eftir mikið gúggl fann ég út úr vandamálinu með permalink strúkturinn (fallegir linkar). Það þurfti að breyta vars.php skránni og force-a WordPress til að sjá að serverinn sem það keyrir á sé Apache. Ástæðan er að SERVER_SOFTWARE breytan er blokkuð. Jíha!

Fastir liðir eins og venjulega

Æ hvað það verður gott að fá daglegt líf í fastar skorður. Jólafríið var ljómandi fínt og allt það en mér þykir magnað hvernig regluleysið fer með börnin. Ásdís Karen var orðin frekar pirruð og skeytti skapi sínu á hverju og hverjum sem var fyrir henni. Lítil stelpa með stórt skap.

Skólinn byrjaði núna í morgun hjá Evu Þórey, Ásdís Karen fór í leikskólann í gær – enda sofnaði hún á undir fimm mínútum í gærkveldi. Býst við að svipað verði uppi á tengingnum í kvöld hjá þeim báðum.

Mótmælt á Austurvelli – blysavaríant

Þessir hressu krakkar mótmæltu hressilega á Austurvelli með Bengal blysunum sínum.

Til allrar hamingju mundi ég eftir því að síminn minn er útbúinn myndavél.

jóla

Ég sem ætlaði að vera gríðarlega duglegur við að blogga um jólin, setja inn myndir og allt hvað eina.

Jæja, ég var þó duglegur að borða – eiginlega allt of duglegur.

rop.

afsakið.

Læri á mánudegi, trúlofunarafmæli og flensusprauta

Helena fékk jólagjöfina frá leikskólanum í gær. Í pakkanum var meðal annars bláberjakryddað lambalæri sem ákveðið var að elda enda voru góðar ástæður til þess: lærið átti að renna út 31. des, plássið í ísskápnum er af skornum skammti og síðast en ekki síst áttum við 13 ára trúlofunarafmæli. Eiginlega no-brainer.

Lærinu var því hent inn í 180°c heitan ofn með kjötmæli þangað til kjarnhiti var orðinn 80°c.

Sósan tókst afbragðsvel:
Nokkrir sveppir skornir og steiktir í íslensku smjöri, vatni og nauta- og kjúklingakrafti bætt útí auk bláberjakryddblöndu sem eftir varð í umbúðunum af lærinu. Þykkt með smjörbollu, nokkrum dropum af matarlit bætt við, nokkrir snúningar af svörtum pipar, sletta af rjóma og púnkturinn yfir i-ið: matskeið af rifsberjahlaupi.

Eins og lög gera ráð fyrir var lærið látið hvíla í sirka kortér eftir það kom úr ofninum og það reyndist afskaplega gott – jafnvel awesome.

Fór í bólusetningu vegna svínaflensunnar í gær. Var sagt að ég gæti orðið aumur í handleggnum á eftir. Þegar ég vaknaði í morgun var eins og ég hefði verið kýldur í öxlina, það rífur í að lyfta handleggnum. Helena fór fyrir um það bil mánuði síðan og stelpurnar í síðustu viku. Fjölskyldan er því orðin helbólusett gegn óværunni.

Það ber að hrósa þegar vel er gert

Síðastliðinn þriðjudag stóð Helena í bakstri, bakaði meðal annars gómsæta lakkrístoppa. Í toppana fór lakkrískurl frá Góu en þegar Helena mældi í uppskriftina kom í ljós að í pokanum sem átti að innihalda 200 grömm voru einungis 150 grömm.

Hún samdi póst þar sem hún lýsti óförum sínum við baksturinn og sendi á sælgætisgerðina Góu. Póstinum var svarað af starfsmanni Góu sem baðst afsökunar og sagði frá því að mistök hefðu orðið í framleiðsluferlinu. Starfsmaðurinn bað í leiðinni um heimilsfang Helenu svo unnt væri að bæta fyrir mistökin.

Í morgun kom kassi í póstinum sem hýsti konfektkassa, hraunbita, hlaupbangsa, lakkrískurl, lakkrískonfekt og rúsínur.

Vel gert.

Góa hefði getað sent okkur 200 gramma poka af lakkrískurli og látið þar við sitja. Í staðinn fóru þau fram úr væntingum og sendu kassa drekkhlaðinn góðgæti.

Góa fær því verðskuldað hrós.

Rafsuðublinda, eða svona hér um bil

Þegar skipt er um peru í halógenljósi þarf ég að:

  • slökkva bévítans ljósið og hafa þá vasaljós til að sjá hvað ég er að gera
  • setja á mig góð sólgleraugu

Skipti nefnilega um peru í ljósi inn á baði um helgina og var allt að því löglega blindur í nokkrar mínútur á eftir…

Ölsmökkun

Mikið afskaplega finnst mér Víking jólabjórinn góður.

Helena er á jólaglöggi með leikskólanum og stelpurnar sofnaðar. Þetta var spurning um norska spennumynd á RÚV eða tölvuna og fágaða ölsmökkun.

Feginn að ég valdi rétt :o )

Heitasti sörfstaðurinn

Kastljós fjallaði um brimbrettaiðkun síðastliðinn miðvikudag. Sýnt var myndskeið frá “leyndum” stað þar sem hugrakkir surfarar sýndu hæfileika sína í ólgandi brimsköflum.

Heimakunnugir, eins og ég, sjá að þessi “leyndi” staður er enginn annar en brimbrettaparadísin Þorlákshöfn – nánar tiltekið grjótfjaran fyrir neðan útsýnispallinn; þar sem vikurvinnslan er.

Umfjöllun Kastljóss má skoða hér: Brimbretti í íslenskum sjó.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE