Færslur í flokkinum ‘dagbók’

Jíha!

Það spáir hlýindum og rigningu næstu dagana.

Ég er afskaplega sáttur við að losna við fátans snjóinn.

Búsetuafmæli

Í dag eru fimm ár síðan við fluttum úr ys höfuðborgarinnar í sveitasæluna hér í Ölvezinu. Við ætluðum upphaflega að flytja þann 5., sem var laugardagur, en fengum óvænt góðan flutningabíl til afnota á föstudeginum. Mig minnir það hafi tekið um 3 tíma að sópa út úr Reykási 41 inn í bílinn, skottast yfir Þrengslin og henda úr bílnum inn í bílskúrinn hér í Ölvezborg.

Hér hefur okkur liðið vel allan tímann og viljum hvergi annnars staðar vera. Í bili að minnsta kosti…

Og þá kom snjórinn

Ullabjakk.

Ég var með þá barnalegu óskhyggju að það kæmi ekki meiri snjór í vetur. Það gekk ekki eftir.

Færðin á milli Þorlákshafnar og Reykjavíkur var svo sem ekkert til að kvarta yfir, hún var hins vegar verri inni í þorpinu. Nú þarf Helena að böðlast á Fabiunni með stelpurnar í leikskóla og skóla en sem betur fer er sá bíll nokkuð seigur.

Það verður víst skafrenningur og snjókoma í allan dag. Vona ég verði ekki veðurtepptur í borginni.

Viku síðar

Námskeiðið var fantagott. Platt er fínn kennari og fyrirtaks fyrirlesari. Fór í hádeginu síðastliðinn miðvikudag á fyrirlesturinn Why Software Sucks sem hann hélt á Grand Hótel – margt fróðlegt sem kom þar fram og oftar en einu sinni setti ég höku í bringu og viðurkenndi í hljóði augljós mistök.

Prism + WPF fara saman eins og camenbert og sulta; gin og tónik – ég fæ þó ekki að nota þetta í vinnunni alveg á næstunni, verð að láta mér nægja að fikta í þessu á kvöldin heima.

Held ég hafi staðið mig með ágætum á konudaginn. Konan og dæturnar fengu allar glaðning, ég  úrbeinaði lambahrygg og eldaði í hádeginu og bakaði súkkulaðiköku með kaffinu seinnipartinn (Betty Crocker að vísu en hey, telst samt!). Einu vonbrigðin þennan daginn var ekki hægt að rekja til mín ;o)

Endurmenntaður

Í dag og  næstu tvo daga verð ég á námskeiði á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. David Platt, prófessor við Harvard háskóla, ætlar að kenna mér og einhverjum öðrum Programming Microsoft Prism, the Composite Application Library.

Prism er hlutasafn fyrir WPF (Windows Presentation Foundation) og Silverlight, fókusinn hjá mér verður á WPF-ið.

Hef áður fiktað við Prism og WPF en það fikt nær þó frekar grunnt – vonast til að vinna mér inn svartabeltið á námskeiðinu. Tæknilostinn er í það minnsta geypilegur.

Réttlæting

Þegar það er bolludagur, þá er fullkomlega eðlilegt að borða rjómabollur í kvöldmat.

Eða er það ekki?

Fyrsta fimleikamótið

Eva Þórey keppti á sínu fyrsta fimleikamóti á sunnudaginn var. Mótið var haldið á Selfossi þar sem um það bil 160 keppendur frá 6 liðum öttu kappi. Hennar hópur stóð sig með prýði – hreppti ekki ein af þeim 5 verðlaunum sem í boði voru en eru reynslunni ríkari.

Ég var með myndavélina en sat of langt frá til að ná viðunandi myndum, er hundsvekktur útí sjálfan mig að hafa ekki reynt að ryðjast nær.

Datt maturinn í gólfið?

Ég miða við 5 sekúndur; það er að segja ef ég næ matnum af gólfinu innan 5 sekúndna er fullkomlega öruggt og í góðu lagi að neyta hans.

5 sekúndna reglan er nokkuð þekkt, þó einhverjir vilja frekar miða við 30 sekúndur, þá ég held að 5 sekúndur séu nokkuð skynsamleg tímamörk.

Ef þú ert óviss um tímamörkin gæti þessi mynd verið hjálpleg:

Upprunaleg færsla: http://blogs.sfweekly.com/foodie/2010/01/you_dropped_food_on_the_floor.php

Heilsubrestur

Skelltum okkur á þorrablót á Eyrarbakka í gærkveldi. Tengdamóðir mín var í skemmtinefnd og því um skyldumætingu að ræða. Stelpunar fóru til afa og ömmu á Setberginu.

Blótið var frábært; hitti fullt af skemmtilegu fólki sem ég hef ekki hitt lengi og maturinn var …bara …þorramatur.

Heilsan er því ekki með besta móti í dag. Finnst eins og heilinn vilji út úr höfðinu. Ái.

Heppinn bóndi

Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag beið mín nýbökuð súkkulaðikaka og þeyttur rjómi, dularfullur pakki og teikningar eftir stelpurnar.

Teikning Evu Þóreyjar var af mér með textanum “I love you Jón Óskar” :)

Mikið á ég góða konu og góðar dætur!

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE