Færslur í flokkinum ‘dagbók’

Montrassgat

Ég er búinn að vera alveg ferlega montinn frá því í gær. Konan nefnilega fékk hæstu einkunn fyrir lokaritgerðina sem hún og skólasystir hennar gerðu saman.

Hún “eisaði” þessa síðustu önn sína í skólanum og nú er útskrift næst á dagskrá – laugardaginn 12. júní á Akureyri. Við ætlum hins vegar að fagna árangrinum á Hafnardögum nú um helgina; það verður dansiball á laugardagskveld og þá skal twistað. Eða, að minnsta kosti konan.

Inspired by Iceland

Mér finnst þetta ótrúlega töff vídjó:

http://www.vimeo.com/12236680

Sjá nánar: Inspired by Iceland og Vimeo.

Óskhyggja og leti

Þegar ég legg bílnum mínum á morgnanna hér niður í bæ sendi ég SMS skilaboð til leggja.is þjónustunnar: P 3 XX-ZZZ (þar sem tölustafurinn 3 stendur fyrir gjaldsvæðið sem ég legg á).

Ég vildi óska þess ég gæti lagt bílnum beint fyrir utan vinnuna, sent téð SMS og einhver bílastæðasjóðsstarfsmaður kæmi snarlega og leggði bílnum fyrir mig í stæði á umbeðnu gjaldsvæði.

Það væri æði.

Púnktafærslan

  • Var í Las Vegas dagana 9. – 15. apríl á DevConnections ráðstefnu á vegum vinnunnar. Vegas er stórbrotin borg við fyrstu sýn en ég fékk fljótlega leið á henni. Ráðstefnan var stórfín. Fékk hland fyrir hjartað miðvikudaginn fyrir brottför, 14. apríl. Fékk þá SMS frá Helenu sem var einhvern veginn á þessa leið: “Vona þú komist heim! Nú er hafið gos í Eyjafjallajökli og er víst margfalt stærra en hitt [túristagosið á fimmvörðuhálsi]“. Verslaði af mér sokkana; þrátt fyrir stöðu gengis var fáránlega ódýrt að versla þarna. Það eru einhverjar myndir frá Vegas ferðalaginu á Flickr síðunni.
  • Fór á bekkjarmót af tilefni 20 ára fermingarafmælis. Hrikalega gaman að hitta liðið aftur og kvöldið var stórskemmtilegt með frábæru myndasjóvi frá grunnskóla árunum. Er þó enn í afneitun að það séu 20 ár síðan ég fermdist!
  • Helena kláraði lokaritgerðina og önnur verkefni sem lágu fyrir. Nú er þessum 4 árum að ljúka og formleg útskrift verður á Akureyri 12. júní. Erum búin að tryggja okkur gistingu og stefnum á að vera fyrir norðan dagana 10. – 13. júní.
  • Stelpurnar fengu loksins trampólínið sem þær hafa grátbeðið um síðustu tvö ár. Það var keypt sem sumar-/afmælisgjöf frá okkur og ömmum og öfum.
  • Ef myndbandið af Eyjafjallajökli sem Sean Stiegemeier gerði fór fram hjá einhverjum á Facebook um helgina, mæli ég eindregið að horfa á það hér að neðan. Ég er búinn að vera með lagið hans Jónsa, Kolniður, á heilanum síðan ég sá myndbandið á föstudagskvöld.
http://www.vimeo.com/11673745

Máttleysi

Er búinn að vera ferlega andlaus síðan ég kom að utan.

Held ég sé allur að koma til.

Páskahret

Náttúruhamfarir

Alltaf sama dramatíkin á 365 miðlum.

Í fimmfréttum þuldi fréttamaður upp: “Jarðskjálfti upp á 2.6 skók Þórsmörk í dag…”

2.6? TVEIRKOMMASEX!?!?!

Það eru meiri læti í tveimur mjaltakonum í snúsnú heldur en jarðskjálfta upp á tvo komma sex. Að minnsta kosti finnst mér frjálslega farið með orðið skók þarna.

mbl voru öllu hógværari í sínum fréttaflutning.

Eldsvoði

Mér fannst skyggnið afskaplega lélegt, óvenju lélegt, þegar ég keyrði upp Túngötuna rétt áðan. Landakotskirkja, hvar ég lagði bílnum, böðuð í reyk – það var eitthvað mikið á seyði. Reykurinn þykknaði og lyktin varð æ sterkari eftir því sem ég kom nær Landssímahúsinu, þegar ég horfði út Aðalstrætið sá ég að reykurinn kom einhversstaðar þaðan sem Gaukurinn var.

Ég ræddi stuttlega við slökkviliðsmann sem var að skrúfa frá brunahana við Ingólfstorg. Sá gat sagt mér lítið annað en: “þetta eru MIKIL læti”.

Mbl var vitanlega með þetta allt á hreinu.

Gosið

Við sváfum af okkur fyrstu fréttir af gosinu sem hófst í gærnótt. Sáum aukafréttatíma auglýstan þegar kveikt var á viðtækinu í gærmorgun þegar stelpurnar ætluðu að fara horfa á barnaefnið. Mér datt ekki neitt annað í hug en að byrjað væri eldgos – og það stóðst.

Eftir morgunmatinn rúntuðum við á útsýnispallinn við vikurinn í von um að sjá einhver ummerki gossins þrátt fyrir lélegt útsýni. Ég tók vitaskuld myndavélina með mér en þegar ég ætlaði að fara skjóta myndum gerðist ekkert. Rafhlaðan var tóm.

Á leiðinni í vinnuna í morgun gaut ég augunum reglulega í austurátt í von um að sjá eitthvað. Árangurslaus tilraunastarfsemi sem ég hætti fljótlega – svona til að halda bílnum á þjóðveginum. Sá svo á mbl.is að gosið hefði verið með rembing um kortér yfir sjö og upp hefði stigið tignarlegur strókur. Var auðvitað kominn í bæinn þá og missti þar af leiðandi af því. Týpískt.

Stuttur dagur

Í tilefni dagsins ætla ég að hætta í vinnunni örlítið fyrr í dag, vinn það upp í kvöld.

Það þarf jú að dekra við afmælisbarnið og huga að ýmsu fyrir eldamennsku kvöldsins :)