Færslur í flokkinum ‘tónlist’

Enn af jólalögum

Rambaði á þetta fyrir rælni á youtube í morgun.

Afskaplega notalegt og fallegt jólalag.

YouTube Preview Image

Skemmtilegt jólalag

Þau eru nú ekki mörg, en þau leynast inn á milli; skemmtilegu jólalögin.

Var að horfa á Logi í beinni rétt áðan og þá rifjaðist upp fyrir mér jólalagið sem Sprengjuhöllin tók í þættinum fyrir ári síðan.

Það er skemmtilegt jólalag:

YouTube Preview Image

Viti einhver hvar/hvort hægt sé að festa kaup á hljóðritun af þessu lagi einhversstaðar má hinn sami láta mig vita með kommenti.

Takk.

Seinn að fatta

…en mikið afskaplega er Sex on Fire með Kings of Leon gott lag [ sjá YouTube ].

Nýja platan, Only by the Night, er afbragðs góð. Mæli með henni.

Pork and Beans

Nýtt efni frá uppáhaldshljómsveitinni minni ever: Weezer

YouTube Preview Image

Human

Til að koma blóðinu af stað á keyrslunni til Reykjavíkur á morgnana set ég iðullega á Human með Carpark North, kick ass keyrsla þar á ferð. Hækka í græjunum þannig að Fabian hristist og skelfur.

Gæsahúðin sprettur fram, adrenalínið keyrist upp og ég glaðvakna.

Góðir hálsar, skrúfið upp hljóðstyrkinn og hlýðið á Carpark North:

íslensk tónlist

Besta íslenska tónsmíð, hingað til, er án efa “Viðrar vel til loftárása” með Sigur Rós. Tóndæmi.

- J

(tók einhver eftir því að ég mundi eftir “sk” reglunni í titli þessarar ágætu færslu?!?!)