Nýtt efni frá snillingunum í Flight of the Conchords, I’ve got hurt feelings:
Til upprifjunar þá gerðu þeir garðinn frægan með laginu Business Time:
Miklir meistarar.
Ragna Kristín sagði mér frá mögnuðu lagi sem hún hafði heyrt á Xinu. Mundi reyndar ekki alveg hver flytjandi var eða hvað lagið héti, engu að síður var forvitni mín vakin.
Fékk SMS í fyrradag frá Rögnu með upplýsingum um verkið. Flytjandi er Bon Iver og lagið Skinny Love. Ég hafði heyrt lagið áður og finnst það afskaplega gott.
Á YouTube eru nokkrar útgáfur – fann ekkert “official” músík vídjó en hreifst af stemningunni sem er í þessu, kíkið á það:

(mæli sérstaklega með HD hnappinum til að sjá dýrðina í High Definition; betra hljóð)
Liverpool bloggið býður nú upp á niðurhal af leikjum Liverpool þetta tímabilið.
Ég niðraði skránni, bjó til nýtt dagatal í Google dagatalinu (það er hægt að hafa mörg undir einum hatti) og flutti skránni inn í það (import), easy peasy. Nú er engin hætta á að ég missi af leik! Ekki eins og það hafi verið vandamál til þessa ;o)
Frábær fítus í Google dagatalinu er að ég stillti það til að senda mér póst á hverjum morgni um viðburði dagsins. Í dagatalinu eru helstu afmælisdagar og nú, leikir Liverpool.
Færsluna með niðurhalinu á dagatalinu má finna hérna.
Gerðum okkur glaðan dag í dumbungnum og fórum að sjá Ísöld 3 í Sambíóum Álfabakka ásamt Gesti, Dai, Gillí og Bergi Ómari. Ég var einstaklega hygginn í þetta skiptið og keypti miða fyrir hersinguna á midi.is áður en við lögðum í’ann. Það átti eftir að koma sér vel því lengdin á röðinni í miðasöluna var slík að við hefðum ekki komist að í tæka tíð.
Völdum 3D sýninguna en ég varð fyrir vonbrigðum; það var einungis eitt atriði sem mér fannst njóta sín til fulls í þrívíddinni sem mér þykir afar slappt.
Hléið var heldur langt og Ásdís Karen og Bergur Ómar voru farin að ókyrrast síðasta kortérið en myndin sem slík var ágætis skemmtun. Niðurstaðan er sú að upplifunin var ekkert til að hrópa húrra yfir – myndin hefði sennilega skilað nákvæmlega því sama hefðum við horft á hana á DVD.
Við gerðum óformlega könnun á ferðavögnum á leiðinni heim: töldum 28 fellihýsi, 18 tjaldvagna og 9 hjólhýsi frá Álfabakkanum. Vinsælustu vagnarnir hljóta því að vera fellihýsin.
Grípandi lag frá fyrstu hlustun, The Noisettes – Never Forget You.
Minnir dulítið á Duffy og Amy Winehouse – svona sixtís fílingur.
Hressandi.
Nýlegar athugasemdir