Færslur í flokkinum ‘boltinn’

Skemmtileg atvik úr boltanum 2009

Fann þetta á dv.is

Fyrri hluti

YouTube Preview Image

Seinni hluti

YouTube Preview Image

Liverpool leikir 2009-2010 í dagatalið

Liverpool bloggið býður nú upp á niðurhal af leikjum Liverpool þetta tímabilið.

Ég niðraði skránni, bjó til nýtt dagatal í Google dagatalinu (það er hægt að hafa mörg undir einum hatti) og flutti skránni inn í það (import), easy peasy. Nú er engin hætta á að ég missi af leik! Ekki eins og það hafi verið vandamál til þessa ;o)

Frábær fítus í Google dagatalinu er að ég stillti það til að senda mér póst á hverjum morgni um viðburði dagsins. Í dagatalinu eru helstu afmælisdagar og nú, leikir Liverpool.

Færsluna með niðurhalinu á dagatalinu má finna hérna.

Torres, Torres, Torres

Spánverjar unnu Nýja Sjáland fimm núll í álfukeppninni í gær.

Fernando Torres, El Nino, með þrennu takk fyrir.

Hægt er að skoða mörkin á Footytube.

Einhverjar kjaftasögur eru í gangi að júnæted ætli að bjóða 40 milljónir punda fyrir Torres. Ég verð alveg brjálaður ef hann verður seldur þangað. AAAAALVEEEEEEG!

Meistaradeildin í kvöld

Úrslitaleikur meistaradeildar evrópu er í kvöld og búið er að stofna veðpott í vinnunni um úrslitin og hvort Eiður Smári komi inn á og ef svo, á hvaða mínútu.

Ég var frakkur og tippa 5-4 fyrir Barca eftir vítaspyrnukeppni og eiður komi inn á 63 mínútu.

Undir þetta legg ég einn öl.

Þess má geta að leikurinn í kvöld er í opinni dagskrá.

Háspenna lífshætta

Leikurinn í gærkveldi var jafnmikil rússíbanareið og leikurinn við Chelsea fyrir viku síðan. Annað 4-4 jafntefli.

Drullufúlt þar sem Liverpool voru klárlega betra liðið, sprengdu vörn Arsenal hvað eftir annað, en púllararnir gerðu sig seka um varnarmistök – fjórum sinnum (að minnsta kosti þrisvar…). Arshavin var ótrúlegur.

Þeir sem halda því ennþá fram að Liverpool séu leiðinlegt og varnarsinnað fótboltalið geta étið það sem úti frýs.

Svona eiga fótboltalýsingar að vera

Þau voru ekki minni lætin í mér og Gesti bróður yfir leiknum á laugardaginn…

YouTube Preview Image

Góð vika

…hjá Liverpool.

Vinna Real Madrid 4 – 0 á Anfield og Man. Utd. 1 – 4 á Old Trafford.

Að vinna 2 af bestu fótboltaliðum í Evrópu í dag með tölunum 8 – 1 er nú bara afar góður árangur. Verst þeir spiluðu ekki svona vel í allan vetur.

Læt fylgja með myndband sem sýnir stemninguna á Anfield fyrir leikinn gegn Real Madrid.

Við Helena ætlum í pílagrímsferð þangað einhvern daginn sjáið til.

YouTube Preview Image

Mikið er ég ánægður…

Þeir unnu.

Pirringur

Ég horfði á fótboltaleik í gær.

Liðið mitt (og fjölskyldunnar) gerði enn eitt jafnteflið og er nú hægt og bítandi missa scum júnæted fram úr sér, eftir að hafa vermt toppsætið í nokkrar vikur.

Pirringurinn var orðinn svo mikill þegar á leikinn leið að ég var um það bil að springa – ég missti það út úr mér við Helenu að nú væri ég hættur að horfa á fótboltaleiki. Skiptingar stjórans voru vægast sagt undarlegar; Torres og Gerrard liklega hvíldir fyrir leikinn á móti chel$ki um helgina en í huga Rafa virðast þrjú stig á móti chel$ki vera mikilvægari en þrjú stig á móti þessi fátans Wigan liði.

Það er ekki alltaf dans á rósum að vera knattspyrnuunnandi – en erfiðara þó er að vera Liverpool aðdáandi.

Eins gott að leikurinn um helgina vinnist. Líklegast fer hann þó jafnt.

Captain Fantastic: Stevie G

Fann þetta á vísir.is: Bestu mörk Steven Gerrard

Unaðslegt á að horfa.

Reyndar er markið sem hann skoraði á móti Marseilles í vikunni ekki í þessari upptalingu en því verður bætt úr hér:

[ YouTube vídjó fjarlægt ]

EDIT:
Vegna réttindamála hefur vídjóið verið fjarlægt af YouTube, þökk sé UEFA.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE