Afskaplega flott myndband sem var tekið í skorpum á um það bil einu ári.
Myndband og nánari lýsing á vimeo.
Rúnar félagi minn kynnti mig fyrir hljómsveitinni Bombay Bicycle Club í síðustu viku. Lagið Always Like This hefur hljómað undanfarið á Xinu en þrátt fyrir að þykja lagið gott veitti ég hljómsveitinni ekki frekari athygli. Úr því hefur verið bætt þegar þessi orð eru skrifuð.
Er með skífuna I Had The Blues But I Shook Them Loose á playlistanum og hún hljómar bara skrambi vel.
Hér er tóndæmi, Dust On The Ground:

Vampire Weekend hafa tekið hug minn allan. Ég dýrka þessa hljómsveit.
Fyrsta lagið sem ég heyrði með þeim var Oxford Comma og var í kvikmyndinni I Love You Man. Nú keyri ég tvær plötur frá þessari æðislegu sveit í spilaranum; frumburðinn Vampire Weekend og þá nýjustu Contra.
Þessi lög eru öðrum betri í augnablikinu:
Rakst á nýtt stöff frá Julian Casablancas; forsprakka New York gæðasveitarinnar The Strokes. Lagið 11th Dimension er hreint sælgæti fyrir eyrun, tælandi seiður með sterkum eitís áhrifum.
Hlustið hér: Julian Casablancas – 11th Dimension
Næst á dagskrá er að vera sér úti um eintak af plötu Julians, Phrazes For The Young.
Julian sprellaði með gosunum í SNL, úr varð tónlistamyndbandið Boombox:

Krakkarnir í Silversun Pickups eru hressir.
Lagið Substitution af “nýju” plötunni Swoon finnst mér afskaplega gott:

Mæli með því að horfa á myndbandið í háskerpu á YouTube:
http://www.youtube.com/watch?v=HcwX2TnsTPE&fmt=22
Tékkið líka á Well Thought Out Twinkles og Lazy Eye á þessu YouTube fyrirbæri í leiðinni, frábær lög.
Nýlegar athugasemdir