Montrassgat

Ég er búinn að vera alveg ferlega montinn frá því í gær. Konan nefnilega fékk hæstu einkunn fyrir lokaritgerðina sem hún og skólasystir hennar gerðu saman.

Hún “eisaði” þessa síðustu önn sína í skólanum og nú er útskrift næst á dagskrá – laugardaginn 12. júní á Akureyri. Við ætlum hins vegar að fagna árangrinum á Hafnardögum nú um helgina; það verður dansiball á laugardagskveld og þá skal twistað. Eða, að minnsta kosti konan.

3 athugasemdir við “Montrassgat”

  1. Ómar Bróðir says:

    Hey gaur á bara endalaust að vera faggi, á ekkert að fara skrifa eitthvað á þessa heimasíðu hjá þér?????

    Þú ert samt geðveikt fínn gaur…

  2. Æ takk, ég veit ég er geðveikt fínn gaur – er minna fyrir að vera faggi. Nú gæti vel farið svo að riti orð hingað inn við tækifæri, fyrst ég fæ svona fína hvatningu :)

  3. - grettir says:

    Talandi um fagga..
    Fyndnasta tækling á dónalegum pósti sem ég hef lesið:
    http://www.27bslash6.com/foggot.html

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE