Las Vegas

Mynd: roadsidepictures (á Flickr)

Á föstudaginn flýg ég frá eldfjallaeyjunni Íslandi til fyrirheitna landsins í vestri. Áfangastaður: Las Vegas.

Fyrir um það bil einum og hálfum mánuði síðan var ákveðið að ég færi á tölvunördaráðstefnuna DevConnections – þar sem Microsoft Visual Studio 2010 verður formlega lúnkað. Fyrstu dagana eftir mér var tilkynnt þetta lá mér við undirmigu að spenningi. Ég lá yfir korti af Vegas á Google Maps, skoðaði túrista upplýsingar og stúderaði The Hangover þangað til þráhyggjan jaðraði við hreina geðveiki.

Svo slakaði ég á….

Nú kortér í ráðstefnu er spenningurinn farinn að ágerast og hið forljóta andlit þráhyggjunnar komið aftur á stjá. Það hjálpar ekki að við þrjú sem erum að fara redduðum okkur miða á tónleika í Vegas – tónleika sem fyrir löngu er uppselt á. Og þetta eru engir smá-tónleikar; Muse spila fyrir dansi og krakkarnir í Silversun Pickups hita mannskapinn upp. Úff… Þetta. Verður. Mega.

Ráðstefnan er haldin á Bellagio hótelinu þar sem við gistum. Við hliðina á Bellagio er Caesars Palace hótelið þar sem kempurnar í Hangover sýndu okkur hvað Davíð keypti ölið. Það verður sem betur fer ekkert taxa- eða rútuvesen á milli hótels og ráðstefnu eins og þegar ég fór á PDC ráðstefnuna í Los Angeles 2005. Við vorum búin að ráðgera að leigja okkur bílaleigubíl og taka rúnt að Grand Canyon en þar sem það ku taka nánast heilan dag í framkvæmd er líklegt að við látum okkur nægja að skoða Hoover stífluna.

Ein athugasemd við “Las Vegas”

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE