Ásdís Karen veik

Ásdís Karen og Gígja léku sér saman eftir leikskóla á miðvikudaginn. Þær voru að horfa á eitthvað skrípóið þegar við tókum eftir því að Ásdís Karen lá eins og klessa í sófanum og tók ekki þátt í fimleikaæfingunum með Gígju sem stundum eru gerðar samhliða skrípóglápi. Óformlegt hitatékk á enni með samanburði við aðra fjölskyldumeðlimi staðfesti að hún væri komin með hita. Hún var afskaplega slöpp í gær, með ríflega 39°c hita en virðist vera eitthvað skárri núna – að minnsta kosti það sem af er degi.

Prófaði í gær heimagerða fajitas kryddblöndu. Marineraði kjúkling í blöndunni í um það bil klukkutíma, svissaði papriku og rauðlauk á pönnu og hitaði tortilla kökur í grillinu. Handsdown besta fajitas sem hér hefur verið borið á borð auk þess sem ég mun sennilega aldrei aftur kaupa tilbúnar kryddblöndur til þess konar matreiðslu.

Comments are closed.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE