Í spilaranum núna

Vampire Weekend hafa tekið hug minn allan. Ég dýrka þessa hljómsveit.

Fyrsta lagið sem ég heyrði með þeim var Oxford Comma og var í kvikmyndinni I Love You Man. Nú keyri ég tvær plötur frá þessari æðislegu sveit í spilaranum; frumburðinn Vampire Weekend og þá nýjustu Contra.

Þessi lög eru öðrum betri í augnablikinu:

Rakst á nýtt stöff frá Julian Casablancas; forsprakka New York gæðasveitarinnar The Strokes. Lagið 11th Dimension er hreint sælgæti fyrir eyrun, tælandi seiður með sterkum eitís áhrifum.

Hlustið hér: Julian Casablancas – 11th Dimension

Næst á dagskrá er að vera sér úti um eintak af plötu Julians, Phrazes For The Young.

Aukaefni

Julian sprellaði með gosunum í SNL, úr varð tónlistamyndbandið Boombox:

YouTube Preview Image

2 athugasemdir við “Í spilaranum núna”

  1. - grettir says:

    Þetta Boombox myndband er legendary!

  2. Þau eru nefnilega afskaplega mörg myndböndin sem koma frá SNL hópnum og ná legendary status.

    Tvö þeirra sem ég mæli eindregið með eru “Dick in a box” og “Mother Lover” sem Justin Timberlake tók þátt í.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE