Eva Þórey kom til mín skömmu eftir þær fóru uppí rúm með tárin í augunum; kvartaði um sáran verk í maganum. Ég fylgdi henni aftur í rúmið, tók fötu meðferðis og stillti upp við hliðina á rúminu hennar. Um leið og Ásdís Karen sá umstangið fékk hún “vont” í magann. Agalega, agalega vont í magann.
Ég sótti því aðra fötu og setti við rúmið hennar, bauð þeim báðum góða nótt og sagðist nú vona að þær væru ekki að fá ælupest. Þær voru sofnaðar sléttum þremur mínútum seinna.
Helena þurfti nefnilega að fara á fund í kvöld, sjáið til. Mömmusöknuður getur verið ansi svæsinn hjá litum litlum stelpum ![]()









hehehe…þær eru ótrúlega þessar stelpur
Uppátækjasamar með eindæmum
Var annars að taka eftir villu í textanum hjá mér sem ég sá ekki í gærkveldi þrátt fyrir að hafa lesið færsluna að minnsta kosti 3svar yfir. Það vantaði “l” í næstsíðasta orðið; “…litum stelpum” á að vitanlega að vera “…litlum stelpum”