Þetta er ekki hefðbundin píta þar sem brauðinu er skellt í brauðristina og gúmmelaðinu skellt í vasann. Þetta er píta fyrir lengra komna.
Taktu pítubrauðin tímanlega úr frystinum (séu þau þar yfir höfuð) settu í poka og leyfðu þeim að þiðna í rólegheitum. Stilltu ofninn á 180°c. Sippaðu hakki eða kjúkling á pönnu og steiktu þar til tilbúið. Ég nota yfirleitt hakk, krydda með Season-All og þegar hakkið er næstum steikt strái ég pizzakryddi yfir, puðra pizzasósu yfir og blanda saman. Á meðan hakkið/kjúllinn er að eldast á snarkheitri pönnunni er gráupplagt að láta eftir sér að smjörsteikja nokkra sveppi – niðursneidda. Alger killer.
Þegar kjetið er klárt eru pítubrauðin skorin nánast í tvennt, þversum nóta bene, og lögð á álpappírsklædda ofnplötu. Kjetinu skellt á annan helminginn, rifnum osti á hinn og smjörsteiktu sveppunum ofan á hakkið. Á þessu stigi mega ævintýragjarnir bæta meira ofan á; feta osti, ferskum mozzarella eða hverju því sem hugurinn (eða maginn) girnist. Hugrakkir fullkomna verkið með jalapeno sneiðum.
Nú er ofnplatan sett í heitan ofninn og látin dúsa þar í um það bil tíu mínútur, eða þar til osturinn er hæfilega bráðinn. Á meðan dútlaru við að skera niður uppáhalds grænmetið þitt.
Út kemur ofnplatan, pítur færðar á matardisk og grænmetinu dreift yfir af lyst. Púnkturinn yfir i-ið er svo slumma af pítusósu eftir smekk. Helmingnum sem er ekki með hakkinu skellt á og þrýst blítt en ákveðið ofan á. Borðist með hnífapörum, mæli með grillhníf þar sem brauðin verða stökk í ofninum.
Gjörsvovel.









Nýlegar athugasemdir