Stoppað í matargatið

frétt á visir.is um nýtt tímarit, Stoppað í Matargatið, sem fjallar um matreiðslu og annað tengt henni.

Sá sem stendur á bak við tímaritið er ljósmyndarinn Haraldur Jónasson enda eru ljósmyndirnar í blaðinu algert gúmmelaði.

Blaðið er fríkeypis og til allrar hamingju er hægt að skoða það á netinu, á slóðinni: http://matargatid.is/page/Blod

Í blaðinu er fjöldi uppskrifta sem vert er að skoða, ég mun að minnsta kosti spreyta mig á einhverjum þeirra. Þetta er prýðileg viðbót í vopnabúr áhuga-/ástríðukokksins.

Comments are closed.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE