Skítlegt eðli í skjóli myrkurs

Sumt fólk elskar háu ljósin á bílnum sínum. Þetta pakk virðist vera haldið svo sjúklegri myrkfælni að það skeytir engu um aðra í umferðinni – sama hvort það ekur á eftir bíl eða mætir einum.

Undanfarnar vikur hef ég kynnst þónokkrum úr þessum hópi og í hvert sinn sýður á mér. Þessi skítbuxar gera mér, og öðrum væntanlega, lífið leitt með því að:

  • Lækka ljósin tímanlega áður við mætumst en augnabliki áður en við erum samsíða setja háu ljósin á og brenna úr mér augun.
  • Nálgast að aftan, með háu ljósin, og lækka þau ekki fyrr en ég hef blikkað þokuljósinu að aftan eða setja hazard ljósin á – hef þurft að beita báðum úrræðum. Tvisvar hafa beiðnir mínar um lækkun á ljósum verið virtar að vettugi; þá hef ég tekið á það ráð að draga úr hraðanum, fara útí kant og hleypa fávitanum fram úr mér og setja svo háu ljósin á helvítið. Auga fyrir auga, moðerfokker.

Oftast duga blikkin til að viðkomandi lækki ljósin en mér er það gersamlega óskiljanlegt hvernig fólk getur verið laust við alla skynsemi og tillitsemi við samferðamenn í umferðinni ( mamma, krakkarnir eru vondir við mig ;o) ).

Skítbuxar, drullusokkar, fávitar.

4 athugasemdir við “Skítlegt eðli í skjóli myrkurs”

  1. Helena Jóhannsdóttir says:

    já, minn bara reiður!! ;)

  2. Já ég er alveg að verða vitlaus á þessu. AAAALVEEEEEG!

  3. Sæborg says:

    Hahahhah – góður:D

    Ég ætla að leggja mig alla fram við að muna eftir að lækka ljósin og láta þau ekki skína aftan á næsta bíl ef ég á leið eitthvað í nágrenni við Þorlákshöfn á næstunni hahaha:D Nei svona án gríns þá er þetta ömulegt – ég gleymi mér stundum sko (mjög sjaldan samt;) en get aftur á móti bölvað þessum fáráðlingum sem benna úr manni augun án þess að bikkna:D
    En þú færð mitt atkvæði í baráttunni við ljósið – verði "EI" ljós:D

  4. Þakka stuðninginn! Kannski er kominn grundvöllur fyrir stofnun stuðningshóps fyrir "fórnalömb háu ljósanna"?

    Eitt er að gleyma sér að lækka ljósin þegar maður mætir bíl, ég sjálfur er alls ekki saklaus af því. Sá blikkar, ég lækka ljósin mín um leið og biðst afsökunar þó ég viti mæta vel að hinn ökumaðurinn heyri ekki í mér ;o)

    Skúrkarnir sem lýst er í færslunni geta étið það sem úti frýs. Punktur.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE