Tannlæknaheimsókn

Helena fór með Ásdísi Karen í heimsókn til tannlæknisins í gær og í ljós komu tvær litlar skemmdir sem þurfti að laga.

Sú stutta lét það ekki á sig fá og fannst lítið mál að liggja flöt í stólnum með ginið gapandi meðan tannlæknirinn athafnaði sig – hún kveinkaði sér ekki einu sinni.

Að launum fyrir hetjudáðina fékk hún að velja úr dótakörfunni hjá tannlækninum: forláta hring með litríku epli. Hún varð meira að segja að fá að hringja hjá mömmu sinni í mig í vinnuna og segja mér frá þessu, svo spennt og ánægð var hún eftir heimsóknina.

Mikið væri gott ef tannlæknaheimsóknir í framtíðinni (sem verða vonandi ekki margar) yrðu svona lítið mál.

Comments are closed.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE