Eva Þórey átta ára

Það er gömul tugga að tíminn líður hratt en engu að síður er það þekkt staðreynd. Um leið og ég sakna Evu Þóreyjar sem litlu skotti fagna ég hverju árinu sem líður og hún stækkar og þroskast.

Og nú langar hana í síma!

Frá því hún var vart talandi hefur hún haft brennandi ástríðu fyrir tónlist. Hún vildi oft frekar horfa á tónlistarmyndbönd á PoppTV heldur en teiknimyndir – dillaði sér og hummaði með lögunum.

Við gáfum henni því mp3 spilara í afmælisgjöf þó hún hafi sérstaklega óskað eftir farsíma. Okkur finnst einfaldlega ekki kominn tími á að hún hafi síma til eigin afnota.

Ragna Kristín á einmitt líka afmæli í dag. Til hamingju Ragna mín, veit að þú lest þetta því þú ert um það bil sú eina sem kommentar á þetta blessaða tuð mitt á þessum vef.

2 athugasemdir við “Eva Þórey átta ára”

  1. Ragna k says:

    Enda ertu skemmtilegur! En já, man eftir popptíví æðinu hennar. En takk fyrir kveðjuna…segðu svo Evu Þórey að hún geti fengið símann minn þegar ég kaupi mér nýjan, efast þó stórlega um að hún kæri sig um hann, en aldrei að vita þar sem hún er nú smekk mannsekja.

    Og Jón, hvað kommentaleysið varðar er það vegna þess að það bloggar enginn lengur, þyrfti endilega að kynna þig fyrir facebook við tækifæri. Samt alls ekki hætta!

  2. Feisbúkk smeisbúkk pff…

    En ég tek þig á orðinu varðandi símann. Hann verður sennilega mikils virði þegar árin líða (ef hann er það ekki nú þegar!). Nú er þetta höfðinglega boð þitt komið "á blað", engin leið að bakka út úr því ;o)

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE