Útilega 2009 – 2: Hrífunes og Hellishólar

Sumarfríið var rétt skollið á þegar búið var að krækja fellihýsinu aftan í jálkinn og haldið út úr bænum. Fórum sumsé strax á miðvikudagsmorgun í austurátt og áðum við Hrífunes sem er um það bil 15 kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri. Ragna og Beggi voru þar í bústað og við fengum að parkera fellihýsinu hjá þeim. Umhverfið er meiriháttar þarna; lækur sem rennur rétt hjá bústaðnum þar sem krakkarnir dunduðu sér daglangt við að reyna veiða síli. Við Beggi príluðum upp gilið þaðan sem lækurinn rennur úr – svöluðum þorsta og kældum okkur í svölum læknum. Geggjað.

Myndavélin fór í kleinu og hætti að virka strax á fyrsta degi. Bilun. Skjárinn sagði “Error: Press shutter release button again”. Ég tók linsuna af og sá að spegillinn sat fastur uppi, var ekki skemmt. Vorum búin að taka 144 myndir (einhverjar hreyfðar þó og þeim verður hent), get aðeins ímyndað mér hversu margar þær hefðu orðið ef vélin hefði ekki bilað. Ég er búinn að vera ótrúlega sár og svekktur út af þessu. Sem betur fer fengum við litla Canon Ixus 50 vél lánaða hjá tengdó svo við tókum einhverjar myndir til viðbótar en þær voru ekki margar. Það er gríðarlegur gæðamunur á myndum sem koma úr þessum tveimur vélum.

Tókum upp og rúntuðum á Hellishóla á föstudag. Snjólaug og Kalli sem höfðu líka verið í bústaðnum fyrir austan með okkur sóttu fellihýsið sitt á Bakkann og tjölduðu líka. Þegar ég var að tjalda fellihýsinu sá ég að einn af stoðfótunum fjórum vantaði. Fátans fóturinn hafði farið undan einhversstaðar á leiðinni frá Hrífunesi og að Hellishólum. Til allrar hamingju fann Helena fótinn á sunnudagsmorgun. Hann hafði dottið af á tjaldsvæðinu, einhver fundið hann og stillt upp við salernisaðstöðuna.

Dagurinn í gær var því nýttur í að koma tjónuðum hlutum í viðgerð; myndavélin fór í bæinn (fáum hana vonandi á morgun, miðvikudag) en fóturinn undan fellihýsinu fór á verkstæði hér í bæ (fór áðan og hann var tilbúinn).

Næst á dagskrá er ættarmót á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Er að vona að myndavélin verði tilbúin áður en við förum á fimmtudag.

Comments are closed.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE