Það er alveg merkilegt hvað maður getur þróað með sér undarlega kæki og sérvitra siði.
- Ef hægri hendin blotnar, verð ég að bleyta þá vinstri líka (og vitanlega öfugt).
- Ég byrja alltaf á að borða brauð á þeim enda sem snýr upp í forminu sem það er bakað í.
- Ég forðast það í lengstu lög að hafa hljóðstyrk í bílútvarpinu á 13. Lendi ég óvart á 13 tjúna ég á 12 eða 14. (Ómar Páll bróðir tekur þetta skrefinu lengra og hefur hljóðstyrkinn alltaf á sléttri tölu – ALDREI oddatölu).









vá hvað þið eruð furðulegir bræður hehe ;D!!