Uppskrift: Pizzudeig

Hef lengi ætlað að setja hingað inn uppskrift að pizzudeigi sem ég hef verið að þróa með dyggri aðstoð veraldarvefsins.

Hráefni:

  • 700 gr hveiti
  • 450 ml vatn (volgt)
  • 1 1/2 – 2 tsk þurrger
  • 1-2 tsk hunang (eða sykur)
  • ca. hálf teskeið salt (má vera örlítið meira)
  • 1-2 msk ólífuolía

Aðferð:
Vatn, Ger og hunang/sykur sett saman í skál, hrært varlega saman og beðið þangað til gerir byrjar að freyða ofan á vatninu.
Hveiti og salt sett í aðra skál á meðan gerið er að vakna, blandað vel saman og búinn til brunnur í miðjunni.
Þegar gerið er vaknað og í stuði er gerblöndunni hellt í brunninn og ólífuolíunni boðið í partíið.
Öllu hrært saman þangað til þetta er komið vel saman.

Hellt úr skálinni á hreint borð og hnoðað vel saman, í 5-10 mínútur. Það er í góðu lagi að bæta við hveiti sé deigið of blautt, bæta bara við
í litlum skömmtum – deigið á að vera örlítið rakt.
Þú veist það deigið er orðið gott þegar áferðin er slétt og það dúar þegar komið er við það með fingri.

Poka skellt utan um skálina og látið hefast á hlýjum stað sem er laus við dragsúg. Ég set það inni í ofn – vitaskuld án þess hann sé í gangi ;o)
Látið hefast í amk 45 mín, eða þangað til að deigið hefur um það bil tvöfaldast að stærð.

Eftir hefingu er deigið tekið úr skálinni og mesta loftið slegið úr því. Gott að berja í það með hnefunum.
Skipt í kúlur, kúlurnar flattar út og af gefinni reynslu er afar gott að láta útflatta deigið hvíla (hefast) í 5-10 mín, en það er þó ekki nauðsynlegt.

Ég bý til 4 kúlur úr þessari uppskrift, þar sem ein þeirra er örlítið þyngri (stærri) en hinar og er brúkuð í brauðstangir.
Hinar kúlurnar flet ég út í ca. 12″.

Mikilvægt:
- Það hefur gefist vel að miða við að hlutfall hveitis á móti vatni sé 60-65%
- Hnoða deigið vel. Það tekur á en árangurinn er vel þess virði.

Njótið.

E.S.: Þú mátt gjarnan láta mig vita í ummælum ef þú prófar þessa uppskrift og segja frá hvernig til tókst :o )

5 athugasemdir við “Uppskrift: Pizzudeig”

  1. Ragna says:

    Takk fyrir góða (og skemmtilega) uppskrift, slær jóa fel út!

  2. Þakka hrósið. Var einmitt að velta því fyrir mér að starta minni eigin sjónvarpsseríu: “Sullað með séra Jóni”. Þetta gerði útslagið – ég læt verða af því ;o)

  3. Ágúst Þór says:

    Vá, þú hefur sko greinilega lagt mikla vinnu í þessa uppskrift. Mér leið eins og ég væri að lesa hana í efnafræðibók eða álíka, ég kem pottþétt til með að prufa þessa. Mín er aftur á móti mikið einfaldari:

    450 g Hveiti
    1 pk. þurrger
    2,5 dl vatn
    Olía
    Hvítlaukssalt

    Hveiti, vatn, ger og olíu hellt saman í KitchenAid hrærivélaskálina og hnoðað saman með króknum, þegar alllur vökvi er horfinn bætist við saltið.
    Látið hefast þar til deigið hefur tvöfaldast, fletjið út í eina ofnskúffu og bakist við amk 250°C þangað til tilbúið.

    Gaman að lesa að það séu aðrir en ég sem hafa gaman af því að tala um mat.

  4. Takk fyrir innleggið Ágúst Þór! Ég hef afskaplega gaman af því að föndra við matreiðslu ekki síður en að tala um hana. Nýjungagirnin er rík og tilraunir í eldhúsinu hafa tekist misvel en ég reyni nú yfirleitt að prófa mig áfram þangað til árangurinn er ásættanlegur. Pizzudeigið er dæmi um slílkar prófraunir. Á To-Do listanum er meðal annars pestó og pasta, heimagert vitaskuld, það ku slá því sem maður kaupir úr búð auðveldlega.

  5. Inga Björg says:

    Geggjað gott :D

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE