Ég var að þrífa inn í eldhúsi í gær og þá kemur Eva Þórey til mín og bankar á ísskápinn. Hún er oft í hlutverkjaleikjum og oftar en ekki fæ ég lítið hlutverk. Í þetta skipti var hún að banka hjá mér því ég var dagmamman sem átti að passa barnið hennar. Ég tek við barninu og set það við eldhúsborðið og held áfram að þrífa. Svo auðvitað er ég dottin út úr leiknum og fer að þrífa inn í svefnherbergi…kemur ekki Eva Þórey askvaðandi með miða í höndunum og setur í rassvasann hjá mér og segir: Þú skalt sko lesa þennan miða.
Á miðanum stóð:
akverju fórstu frá barninu mínu
seigðu já eða nei
kígdu hinumeigin
ég kíki hinu megin á miðann og þar stóð:
kvar ertu
kveðja
Silíja 
Ég sem sagt steingleymdi barninu sem ég átti að vera að passa og Eva Þórey var nú ekki par hrifin. Þannig að það er spurning hvort ég sé á réttri hillu starfslega séð…hehehe
Ég held ég fái alla vega ekki að passa dúkkurnar hennar Evu Þóreyjar í bráð.









hahahahahaha…þetta barn! Ég hló upphátt. Hún er sko gullmoli!
Úbbbsssadeisí!!!! Gleyma barnabarninu:)
Barnabörnin eru bara svo hrikalega góð og hljóðlát að það er mjög auðvelt að gleyma þeim… kannast við það….á tvö;););) Þannig að þú þarft ekkert að örvænta með starfsvettvanginn….. þú brillerar alveg þar;)
Snilld
Og dugleg að skrifa stelpan!!
Bið að heilsa heimilsfólkinu í Básahrauninu