Bíó

Við fórum í bíó sl. laugardag í boði FSLÍ (starfsmannafélagið í vinnunni). Boðið var á forsýningu á myndinni Skoppa og Skrítla í bíó.

Prógrammið hófst kl. 13:30 þegar Skoppa og Lúsí tóku á móti börnunum í Smárabíó. Þær buðu upp á myndatökur með börnunum en Ásdís Karen guggnaði og þorði ekki. Myndin er um það bil klukkutími að lengd og var meira að segja tekið hlé og alles – alvöru stöff.

Ásdís Karen var ekki sátt þegar myndin var búin – fannst hún of stutt og vildi meira. Evu Þórey fannst jú alveg gaman sko en fannst sennilega meira varið í poppið og kókið.

YouTube Preview Image

Comments are closed.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE