Hóstaði og kvartaði um í hálsinum í nótt og var sjóðandi heit á enninu.
Það var afskaplega sárt að senda hana í rúmið sitt þegar hún bað um að kúra á milli, sárlasin og kvalin greyið. En þar sem Dagrún Inga vinkona hennar gisti hjá okkur í nótt kom ekkert annað til greina. Eftir stílagjöf og hjásetu móður hennar sofnaði hetjan í sínu rúmi.
Lukkulega var hún hressari í morgun – þær vinkonur léku sér eins og enginn væri morgundagurinn.









Nýlegar athugasemdir