Tannmissir og íþróttaskóli

Sætar frænkur á Ljósanótt

Um síðustu helgi skunduðum við á ljósanótt í Keflavík. Dagurinn alveg flaug frá okkur en við náðum þó að kíkja aðeins á lífið. Hjörleifur bróðir var að spila og syngja í einni sjoppunni og hlustuðum við á nokkur lög áður en við fórum í skessuhellinn að skoða skessuna sem þar býr. Ásdísi fannst þetta mest spennandi en var samt ekki alveg viss hvort hún ætti að vera hrædd eða ekki. Í lok dags var okkur svo boðið í mat hjá pabba en hann töfraði fram kjúkling handa okkur og ekki sveik sú máltiíð okkur frekar en fyrri daginn.

Í dag byrjaði Ásdís í íþróttaskólanum. Við Eva þórey fórum með henni og Eva Þórey var dugleg að hjálpa systur sinni í gegnum æfingarnar. Ásdísi fannst mikið gaman og var eins og hún hefði verið í æfingabúðum þarna frá fæðingu. Enda er hún búin að bíða eftir að komast sjálf inn á völlinn eftir að hafa fylgst með stóru systur á æfingum síðustu vetur.

Eva Þórey missti tönn í nótt. Þegar hún vaknaði fann hún að tönnina vantaði svo upp hófst mikil leit að henni. Við litum undir koddann, undir sængina og allt í kring en ekki fannst tönnin. Það var ekki fyrr en Eva Þórey segir að það sé einhver tönn upp í henni sem hreyfist aðeins og er eins og hún sé á nýjum stað. Þá leit ég upp í hana og sá að tönnin sem hún hafði misst um nóttina hafði fest á milli tanna í efri góm og sat þar blýföst. Það þurfti átök til að ná henni út. Við vorum alla vega fegin að hún fór ekki ofan í maga Smile Eva Þórey var aðalega fegin því nú getur hún sett hana undir kodda í nótt og fengið heimsókn frá tannálfinum.

 

Comments are closed.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE