
Um nýliðna helgi var skundað á ættarmót vestur á Snæfellsnes, nánar tiltekið í Langaholt. Reyndar fóru Jón Óskar og Eva Þórey bara tvö þar sem Ásdís var veik. Þannig að við mæðgur vorum bara tvær heima í kotinu á meðan. Þetta var víst mjög skemmtileg ferð eins og við mátti búast. Á laugardeginum tóku þau smá rúnt með Grétari og Júlíönu til að skoða sig um í nágrenninu. Þau fóru meðal annars á Arnarstapa, skoðuðu Sönghelli þar fyrir ofan og enduðu svo í Lýsuhólslaug. Veðrið var auðvitað alveg frábært þessa helgina og komu þau því brún og sælleg heim í gær.

Erum búin að vera svaka dugleg að setja inn nýjar myndir, endilega kíkið á þær og verið svo dugleg að kvitta 
Kveðja, Helena









Kvitt kvitt;)
Oh hvað ég er ánægð með ykkur, fullt af nýjum myndum, halda svona áfram
Þvílíkt útsýni á báðum myndunum hérna fyrir ofan. Útitekin og sælleg mæðginin.
Halló sætu systur,, Ég er farin að telja niður í útileguna sem við förum nú öll saman í ég, þið , KEE. AEE og fleiri og fleir jebb ættarmótið í júlí. Verðum nú að fara að kíkja í heimsókn til ykkar. KEE talar og talar um hana Ásdísi, Ásdísi bestu vinkonu mína eins og hún segir.
Knúserý frá okkur :O)