Afmælisstelpa

Þessi unga snót á afmæli í dag. 3ja ára gömul, hvorki meira né minna. Við héldum upp á afmælið hennar í gær og á þessari mynd er hún í þann mund að fara blása á þrjú afmæliskerti :o ) Hún fékk vitanlega fullt af fallegum gjöfum þar sem stórvinirnir Klossi og Dóra voru í aðalhlutverki. Brosið vék ekki af andliti hennar fyrr en svefninn náði yfirhöndinni í gærkveldi.

Innilega til hamingju með 3ja ára afmælið elsku Ásdís Karen okkar!

Mamma, pabbi og Eva Þórey.

E.S.: Skellum inn mynd af afmæliskökunni, sem við bökuðum og skreyttum. Og það kom ekkert annað til greina en að kakan yrði eftirmynd af Dóru Landkönnuði:

7 athugasemdir við “Afmælisstelpa”

  1. Ragna k, Beggi og Arnór Daði says:

    Til hamingju með afmælið elsku Ásdís Karen okkar! Takk fyrir okkur í gær, kíkju eflaust á þig í dag og knúsum þig ! ;)

  2. Sæborg says:

    Til hamingju með litlu dömuna. Ekkert smá flott kaka hjá ykkur…. þið getið alveg farið að taka að ykkur að baka afmæliskökur;)
    Kveðja úr Grindavíkinni.

  3. Til hamingju með þessa ótrúlega sætu stelpu.
    Held að Jói Fel megi fara að passa sig þegar kemur að afmæliskökugerð.

  4. Innilega til hamingju með afmælið sæta stelpa :-) Bestu kveðjur til allra frá okkur í Silfurtúni.

  5. Jón Óskar says:

    Takk fyrir kveðjurnar og hlý orð í garð Ásdísar Karenar. Það er aldrei að vita nema við förum af stað með “Afmæliskökugerð HJ & JOE ” ;o) Reyndar er Eva Þórey nú þegar búin að leggja inn pöntun á eitt stykki Bratz afmælisköku!

  6. Stella says:

    Innilega til hamingju með afmælið Ásdís Karen

    ……og takk fyrir síðast, ofsalega var gaman að vera hjá ykkur – hlakka til næst!

    kv. Stella

  7. Ragna Kristín says:

    Mér finnst að þið ættuð að skella inn afmælismyndum, eða bara e-m myndum, löngu orðið tímabært! ;)

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE