Við iðum af kláða til að liggja úti í fellihýsinu okkar.
Sjómannadagshelgin framundan þannig ekki verður farið þá helgina, vonum að veðrið verði hagstætt þá næstu. Það eru að minnsta kosti tvær útilegur staðfestar í sumar; ættarmót hjá systkinum mömmu helgina 21.-22. júní og helgina 19.-20. júlí er ættarmót í föðurætt Helenu.

Erum byrjuð á verkefnalista sumarsins er viðkemur húsinu og lóðinni.
- Búin að mosatæta en bíðum eftir rigningu til að bera á grasið.
- Pallurinn olíuborinn í gær og í þessum skrifuðu orðum er Helena að bera á gluggana.
Það sem á eftir að gera hins vegar, er:
- Bera á húsið
- Bera á hurðar
- Bera á vindskeiðar
- Bera á skjólveggi á pallinum
- Bera á sandkassann
- Bera áburð á gras
- Vonandi að smíða skjólbörð á milli innkeyrslunnar og trábeðsins, mölin skolast alltaf í moldina
- Loka pallinum að neðanverðu, negla þar 21×95 planka
Ansi mikill burður þarna á listanum ;o)
Nú er bara að láta hendur standa fram úr ermum og vona veðrið verði hagstætt – ekki miklar líkur á að það standist.









gleymduð að segja: Bera á sig sólarvörn! .. nei bara svona því þetta verður svo sólarglatt sumar !
Jón verður sko olíuborinn, ber að ofan í allt sumar, engin sólarvörn þar á bæ!