Uppfærsla á albúm vef

Langaði að benda á 2 hressandi nýjungar á myndavefnum okkar.

Þegar mynd er skoðuð hafa bæst við 2 hlekkir neðst í fletti-kassanum hægra megin:

Nánari upplýsingar
Birtir upplýsingar sem eru faldar í myndinni sjálfri. Þar má meðal annars sjá hvers konar myndavél var notuð og margt annað sem ljósmyndanördar (eins og ég) hafa gaman af að skoða.

Skoða með svörtum bakgrunni
Skýrir sig nokkurn veginn sjálft. Þegar smellt er á þennan hlekk er myndin sýnd örlítið stærri og á svörtum bakgrunni, ekkert annað í kring.

Setti inn nýtt albúm, sem inniheldur reyndar bara 2 myndir, en meira mun fylgja á næstu dögum… vonandi.

2 athugasemdir við “Uppfærsla á albúm vef”

  1. Über svalt hjá þér. Einnig titillinn á albúminu Mindr, góður. Þú gætir kallað það að skoða mynd með svörtum bakgrunni “Svalt á svörtu”. Heitir þetta ekki bigger on black einhversstaðar?
    Mjög flott hjá þér.

  2. Jón Óskar says:

    Þakka hlý orð í minn garð. Jú, mig rámar í að hafa heyrt þetta “Bigger on black” einhversstaðar… bara man ekki fyrir mitt litla líf hvar það var!

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE