
Við skruppum í húsdýragarðinn í gær. Þar var auðvitað fullt af fólki en við skemmtun okkur vel þrátt fyrir troðning hér og þar. Þurftum að vísu að bíða í tæpan hálftíma í röð til að fá ókeypis pylsu (en hvað gerir maður ekki í kreppunni). Við ætluðum bara að stoppa stutt við en fyrr en varir vorum við búin að vera þarna í 3 tíma.

Ég er loksins búin með prófin og bíð bara eftir að fá allar einkunnirnar. Nú þarf ég bara að venjast þessum mikla tíma sem ég hef orðið fyrir sjálfan mig bæði á morgnanna og kvöldin þar sem ég var að læra alla morgna og öll kvöld. Ég ætti nú kannski að fara að hafa tíma til að setja hér inn einhverjar myndir, nóg eigum við af þeim alla vega.
Þangað til næst,
Helena









Hæ … vildi bara kvitta …
kv. Stella
Einmitt það sem ég vildi fá að heyra, stattu þá við orð þín stelpa og settu slatta af myndum inn. Ég sé að nýja linsan er að gera góða hluti. En alla vega gaman að sjá ykkur í dag, þetta var skemmtileg lágvöruverslunnar ferð (er þetta orð)
Hæ hæ systa,, til hamingju með einkunninar. Þú stendur þig vel, stolt af þér stóra systir.