Þegar ég keyrði framhjá Orkunni við miklubraut í gærmorgun stóð lítraverð af díselolíu í 170,1 ISK.
Nú, einum sólarhring síðar, er hann kominn í 175,1 – EITTHUNDRAÐSJÖTÍUOGFIMMKOMMAEIN!
Lítraverð á eldsneyti er orðið svo hátt að fimm króna hækkun er bara pínöts.
Bensínlítrinn hækkaði hins vegar BARA um einhverjar þrjár krónur.
Tókum fellihýsið út á mánudaginn var og opnuðum það smástund til viðrunar í gær.
Hins vegar veit ég ekki hvort ég eigi eftir að tíma því að draga það í sumar á jeppanum.









Já, hrikalegt!!! Man þegar bensínið fór upp í 90 kr. á lítrann og manni fannst það okur!!!
-Æðislegar myndirnar úr nýju vélinni, ekkert smá flottar
Og líka ekkert smá æðisleg stelpan sem er að lita 
Þetta er bara geðbilun. En það er samt fátt fallegra en að hlusta á angurvært peningahljóðið í Explorernum þegar maður gefur í á ljósum