Nebbalingur

Fæturnir brugðust Evu Þórey í hálkunni sem var í Þorlákshöfninni á þriðjudaginn. Hún datt í skólanum og afleiðingin var rautt, skrámað og bólgið nef.

Doktor Helgi skoðaði hana í gær og fann ekkert alvarlegt að henni. Eigum þó að láta kíkja aftur á hana á morgun (föstudag) ef bólgan er ekki farin að hjaðna.

Helena situr þessa dagana sveitt yfir bókalestri. Fyrra prófið sem hún tekur er á mánudaginn næstkomandi. Það er því útlit fyrir að undirritaður verði “einstæður faðir” með tvö börn um helgina. Hef grun um að við feðgin verðum upptekin við að draga fram jólaskraut og seríur. Setti ljósaseríuna á húsið í blíðunni á mánudag og klæjar í puttana að setja upp fleiri ljós – innan sem utan ;o)

7 athugasemdir við “Nebbalingur”

  1. Ragna says:

    Jæja dúllurnar mínar…hvað er að frétta. Mér finnst tími til komin að setja inn nokkrar myndir. Ég held að það séu fleiri sammála mér! ;)

  2. Helena says:

    já ég er mjög sammála því. Það koma pottþétt myndir eftir 14. des þegar síðasta prófinu mínu er lokið eða við vonum það alla vega :)

  3. Bebba says:

    æjæjæj, stelpuskottið!

    Gangi þér vel í prófunum Helena mín, og þér Jón Óskar í einstæðis hlutverkinu, hehe :)

    Missjú :*

  4. Anna og Baddi says:

    Halló Helena og co.já það væri nú flott að fá fleiri myndir frá ykkur og Heiðu líka það er bara Ragna sem sem sér um að mata skyldfólkið af myndum reglulega.Gangi þér vel í prófunum.Kveðja Anna og Baddi

    Ps Vonandi er nebbin orðin góður.

  5. Anna og Baddi says:

    Halló Helena og co.já það væri nú flott að fá fleiri myndir frá ykkur og Heiðu líka það er bara Ragna sem sem sér um að mata skyldfólkið af myndum reglulega.Gangi þér vel í prófunum.Kveðja Anna og Baddi

    Ps Vonandi er nebbin orðin góður.

  6. Anna says:

    Já það duga sko ekki færri en tvö bréf.Anna

  7. Helena says:

    Bebba og Anna og Baddi: Takk fyrir það :)

    Anna og Baddi: hehe…já það er ekki slæmt að fá 3 comment á sömu frétt frá ykkur :)
    Alltaf gaman að fá comment og gaman að sjá að einhver sé ennþá að kíkja við hjá okkur, þó við séum ekki dugleg að skella inn nýju efni. En ég lofa, það styttist í myndir :)

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE