Helena sótti Ásdísi Karen áðan þegar hringt var frá leikskólanum; sú stutta búin að gubba.
Það er oft talað um að börn þurfi reglu í lífið en að fá umgangspestir á um það bil tveggja vikna fresti er pínu útúr kú! Lukkulega vörðu síðustu veikindi stutt, um einn sólahring. Við vonum að hún hristi gubbupestina fljótt og örugglega af sér. Og þó maður eigi alltaf að deila með sér þætti mér vænt um ef Ásdís sleppti því í þetta skiptið ;o)









Hæ hæ
Vonandi hrisstir hún þetta af sér eins og allar allar allar hinar pestirnar sem hún er búin að fá, hún er svo dugleg.
kv frá borginni