Fórum í útilegu síðustu helgi með Gesti, Dai og fjölskyldu til Hamragarða sem við heimsóttum fyrr í sumar. Fengum príma tjaldstæði við lækinn sem rennur úr Gljúfrafossi (Gljúfrabúa) í fínu skjóli fyrir vindum. Lögðum í hann á laugardagsmorgun og rúntuðum fyrst í Fljótshlíðina en þegar ljóst var að þar var lítið skjól hörfuðum við og ákváðum þess í stað að á við Hamragarða.
Á laugardagskvöldið fylgdumst við með flugeldasýningunni á Þjóðhátíð í Eyjum og fengum brekkusönginn á sunnudagskveldinu nánast í beint í æð – þar sem ábúendur á einkajörðinni við hliðina blöstuðu beinu útsendinguna á Rás 2 í fínu græjunum sínum. Kíktum í sund á Hvolsvelli og ef ég væri sardína hefði mér sjálfsagt liðið vel í yfirfullum pottunum en svo var ekki og við stoppuðum stutt við.
Hotpoint þvottavélin gaf upp öndina fyrir helgi eftir aðeins 6 ára þjónustu. Eftir eilíft vesen á vélinni tímdum við ekki að borga áætlaðan viðgerðakostnað svo það var tekin ákvörðum um að festa kaup á nýrri. Fyrir valinu varð forláta Siemens þjarkur en fyrir eigum við heimasíma og ísskáp af sömu sort sem hafa ekki enn slegið feilpúst (sjö níu þrettán).
Hafnardagar í Þorlákshöfn um helgina og hellingur að gerast. Dagskránna má skoða hér.
Hef verið með nostalgíu undanfarna daga og verið með Carcass í heddfónum í vinnunni. Má ekki hlusta á svona ruddarokk heima ;o) Annars get ég mælt með Zeitgeist með Smashing Pumpkins og Our Love To Admire með Interpol - hressandi skífur báðar tvær.
- jón óskar









Nýlegar athugasemdir