Nýjar myndir, nýr frændi og ferðalag

Sæl öll og langt síðan síðast!
 
Við erum búin að setja inn glás af myndum, ykkur til skemmtunar og dægrastyttingar. Komin eru inn 2 albúm frá ágúst mánuði og von er á albúmi frá september.
 
Gestur og Dai eignuðust dreng þann 28. september sl. Allt gekk vel og er pilturinn sláandi líkur karli föður sínum. Við látum mynd fylgja af Gesti Júníor hér að neðan.
 
Ég og Helena ákváðum að skella okkur í 5 daga ferð til Amsterdam í nóvember. Tilefnið er þrítugs afmæli mitt þann 9. nóvember og verðum við úti 7. – 12. nóvember. Hjörleifur, bróðir Helenu, og Bergþóra unnusta hans ætla að koma með okkur og veita okkur félagsskap og hlakkar okkur öllum gríðarlega til!!

 
Munið að von er á september-myndaalbúmi og við ætlum að reyna taka okkur á varðandi skrif hingað inn ;o)
 
óver and át….

4 athugasemdir við “Nýjar myndir, nýr frændi og ferðalag”

  1. Grétar says:

    Flottar myndir!! vildi að ég hefði verið þarna til að borða kökurnar og allt goðgætið :) :) ….

    Saknaðarkveðjur…

    Grétar

  2. Bebba says:

    AMSTERDAM BABY!!!!! ;)

  3. Helena says:

    AMSTERDAM BABY!!! hehehe
    velkomin heim :) Styttist svo í næstu ferð hjá ykkur :)

  4. Bebba says:

    Takk! :)
    Jább, tventí fæv deis í AMSTERDAM BABY!!!! ;)

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE