
Þá kom að því maður! Eftir langa bið varð stóra prinsessan á heimilinu 5 ára í dag. Þær systur voru á Eyrarbakka í dag því við Helena fórum í gær á Akureyri þar sem Helena var að byrja í Háskólanum.
Amma Snjólaug fór með systurnar í Töfragarðinn á Stokkseyri í tilefni dagsins og skemmtu þær sér allar konunglega. Eva Þórey fékk pakka frá ömmu og afa á Eyrarbakka og í honum var fullt af pæjudóti og þið getið ímyndað ykkur hvað hún varð ánægð með það! Á morgun (26.8) fær hún svo pakka frá mömmu og pabba
)
Ragna Kristín á líka afmæli í dag og má því segja að þetta hafi verið stærðar afmælisdagur á Þykkvaflötinni.
Innilega til hamingju með afmælin ykkar, Eva Þórey og Ragna Kristín!!









Takk fyrir það;)
Til hamingju litla skvís!
Saknaðarkveðjur frá Ameríku!