Komnar tvær tennur

Kannski kominn tími á smá skrif hér.
Ég held við verðum að minnast fyrst á að tengdó (afi Ómi) átti afmæli á laugardaginn þann 14. janúar og var okkur fjölskyldunni boðið í mat af því tilefni. Til hamingju með afmælið elsku Ómi.
 
Ásdís Karen er orðin öllu rólegri á kvöldin og fer fyrr að sofa enda eru tennurnar tvær komnar vel upp og pínan horfin…..að sinni…..þangað til næstu tennur fara láta finna fyrir sér. Settum mynd hér fyrir neðan þar sem tennurnar tvær sjást. Svo er hún farin að fara um öll gólf á maganum, ýtir sér aftur á bak. Þannig að ef hún sér eitthvað bitastætt þá reddar hún sér, kemst þangað sem hún ætlar sér.. oftast. Hún er alltaf að verða duglegri að sitja en ekki alveg hægt að treysta henni einni þar sem hún gleymir sér stundum. Mikið að gerast hjá þeirri litlu þessa dagana.
 
Eva Þórey er alltaf á fullu í leikskólanum og líkar alltaf jafn vel. Kom reyndar aðeins fyrr heim í gær en áætlað var því hún var með “niðurgangur” eins og hún sagði. Fékk einhverja magapest sem er víst að ganga en var fljót að hrista hana af sér. Á morgun er svo bóndadagurinn og þá er haldið þorrablót í leikskólanum og borðaður þorramatur. Eva Þórey spurði áðan hvort hún ætti ekki finna til einhver þorrablótaföt. Hún þarf alltaf að skíra fötin eitthvað. Ef ég fer í fín föt spyr hún alltaf af hverju ég sé komin í veisluföt (ég er greinilega aldrei fín). Á aðfangadag var ég að finna til fötin fyrir mig þegar hún spyr hvort ég ætli virkilega að vera í þessum bol því þetta væri afmælisbolur. Ég var nefnilega í sama bol í afmæli og því var þetta ekki jólabolur heldur afmælisbolur. 
 

 
kveðja, Helena

Ein athugasemd við “Komnar tvær tennur”

  1. Ragna says:

    Hehe, ég sé að Eva er að notfæra sér það sem ég kenndi henni með að flokka föt;) En flottar tennur, sérstaklega þessi vinstra meginn, ákveðinn sjarmur yfir þeirri tönn;)

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE