Ásdís Karen fékk jólaklippinguna sína í gær. Eyrún og Emma Hrönn voru svo elskulegar að kíkja í heimsókn til okkar og skærin voru meðferðis. Satt best að segja þá var kominn tími á að skvísan yrði klippt, hárið var farið að nálgast augun ískyggilega!

Hún (Ásdís Karen) er ákveðin lítil dama. Ef hana langar í eitthvað teygir hún sig eftir því og stundum fylgja stunur sem leggja enn meiri áherslu á að hana vanti eitthvað sárlega! Máli okkar til stuðnings leggjum við fram sönnunargagn 1A:

Amma Veiga og afi Ómi komu frá útlöndum á aðfararnótt mánudagsins; þau fóru til Saint Johns á fimmtudagsmorgun í síðustu viku og vitanlega var heilmikið verslað. Óhætt er að fullyrða að heimasæturnar í Básahrauninu fara síður en svo í jólaköttinn!









Sko skvísuna!
Ég þekki eina skottu sem fær líka jólaklippingu þó svo að hárið sé langt frá augunum. Það er hins vegar að nálgast loftið og minnir þónokkuð á Denna dæmalausa… 
*knús* úr Keflavík City
Hæ hæ, það er aldeilis að maður stækkar, og hárið vex hehe.