Sæl öll og velkomin á nýjan vef fjölskyldunnar.
Í sumar lofaði ég endurbótum á vefnum og hef verið að föndra við þetta öðru hvoru á kvöldin, gaf mér vel rúman tíma í verkefnið. Þar sem ég starfa í hugbúnaðargeiranum tel ég þennan langa tíma við persónulega vefsmíði vera augljósan fylgifisk; einsog smiðurinn sem lagar ekki girðinguna heima hjá sér eða píparinn sem er búinn að vera með stíflað klósett í mánuð – þið skiljið hvert ég er að fara.
Við vonum öll að ykkur líki breytingarnar á framsetningu og útliti, endilega setjið athugasemdir ykkar í ummælin.
Það sem er nýtt á vefnum er:
- Ummæli (loksins!)
- Færslusafn. Yfirlit yfir skrif fjölskyldunnar frá upphafi.
- Tenglar
- Myndir í haus síðunnar. Hægt er að smella á myndina og þá skiptist hún út fyrir aðra.
Annars er allt gott að frétta af okkur. Það er búið að vera brjálað að gera i afmælisstússi hjá Evu Þórey. Hún fór í afmæli til Gillí á föstudaginn og svo fórum við tvö í afmæli til Elvu á laugardaginn. Næsta laugardag er svo eins árs afmæli hjá Eiði Má.
Ásdís Karen veiktist snemma í síðustu viku og eftir heimsókn til Helga læknis var hún sett á pensilín. Hún var svo enn með hita á föstudagsmorgun þannig að Helgi vildi endilega að við færum á barnaspítalann til að láta kíkja á litla skinnið. Eftir að hafa skoðað Ásdísi í bak og fyrir og rýnt í prufur sagði læknirinn að sennilega væri þetta veirusýking og að við ættum að hætta með pensilínið. Á laugardaginn var Ásdís með vægan hita sem lækkaði með deginum og í gær, sunnudag, var hún alveg hitalaus. Þetta er því allt á réttri leið
)
Enda þetta með því að pósta mynd af manni helgarinnar, Djibril Cisse, þar sem hann skoraði sigurmark Liverpool manna á móti Blackburn á laugardaginn. Naumt var það en 3 stig í höfn og enginn brotinn sem er jú mjög gott!

over and át
- jón óskar









Rosa merkilegt að sjá e-r liverpool kall skora e-ð mark…púfff, þetta er daglegt brauð hjá mér. Þetta eru bara nágrannar mínir…bara eins og Gilli á hópi er nágranni mömmu og pabba;) Hehe..en glæsileg breyting.
Hahaha! Er Djibril Cisse góðvinur fjölskyldunnar?!
Flott lúkk, vonandi standið þið ykkur þá betur í skrifum!
Hvenær á annars að koma í heimsókn í menninguna?
Kær kveðja, fjölskyldan í ´bólinu!