Sæl öll. Langt liðið frá síðustu skrifum.
Það hefur heilmikið gerst hjá litlu fjölskyldunni síðustu daga og vikur. Um verzlunarmannahelgina flökkuðum við á milli grillveislna og skemmtum okkur heilmikið meðal fjölskyldu og vina. Dagana 4. – 7. ágúst voru haldnir hér í Þorlákshöfn Hafnardagar og er þetta um 2-3 daga dagskrá sem byrjar á fimmtudagskveldi og endar á sunnudegi.
Við Eva Þórey tókum þátt í dorgveiðikeppni á laugardagsmorginum og er skemmst frá að segja að kappið hafi verið meira í pabbanum en dótturinni. Afraksturinn varð forkunnarfagur verðlaunagripur sem Evu Þórey hlotnaðist, bronsverðlaun fyrir mesta aflann
).
Fjölskyldufaðirinn er enn í fæðingarorlofi en þó bara 50% vinnu sem kom sér vel í nýliðinni viku. Yngsti fjölskyldumeðlimurinn varð óvær og fékk hita á þriðjudagskvöld, einungis rétt 2ja mánaða. Okkur var ráðlagt að fara með hana á Barnaspítala Hringsins, sem við gerðum. Þetta voru 3 dagar í röð sem við fórum þrjú en Eva Þórey var undir verndarvæng ömmu Veigu og síðan Eyrarbakka-gengisins á meðan. Sem betur fer amaði ekkert alvarlegt að Ádísis Karen smávægileg pest sem stúlkan nældi sér í. Hins vegar var ferlið afar óþægilegt, bæði fyrir foreldra og sjúkling. Ásdís Karen þurfti að gangast undir rannsóknir og próf svo hægt væri að útiloka alvarleg veikindi, eins og heilahimnubólgu o.s.frv. Við erum afar fegin því að þessu sé lokið því það stingur í hjartað að sjá þetta litla grey þola svo margt.
Vikan framundan er eiginlegt “sumarleyfi” fjölskyldunnar. Við vorum búin að panta sumarbústað (eða Veiga reddaði okkur eiginlega) en vegna veikinda Ásdísar Karenar ákváðum við að skynsamlegast væri að bíða með að fara í bústaðinn fyrr en á mánudag. Þess vegna var ákveðið að Veiga og Ómi færu uppeftir á föstudag og eyddu helginni þar. Eva Þórey tók forskot á sæluna og fékk að fara með Gesti, Dai, og Gillí í gær og eftir því sem fregnir herma er hún afar upptekin við að fara í pottinn og máta föt (kemur á óvart!).
Framundan er svo leikskóli hjá Evu Þórey en hún byrjar þar eftir viku. Það var svo að koma í ljós í vikunni að ég er að fara til Bandaríkjanna 10. september á Microsoft ráðstefnu fyrir forritara. Herlegheitin verða í Los Angeles þannig að þetta verður laaaangt flug en ljósi punkturinn er að hótelið sem ég mun gista á er í hjarta Hollívúdd, je beibí!
e.s.: Nýjar myndir í myndasafni!









Nýlegar athugasemdir