Á síðasta fimmtudag þann 05.05 eignaðist Bergþóra og Hjörleifur frændi litla stelpu. Innilega til hamingju með hana og svo átti Bergþóra afmæli þann 3. maí, til hamingju með það líka. Í gær fórum við svo til Keflavíkur að kíkja á litlu frænku. Hún er algjör dúlla og okkur fannst hún vera frekar lík mömmu sinni en á eflaust eftir að likjast pabba sínum líka
)
Við kíktum á ömmu og afa í Keflavík í leiðinni og komu þau með okkur upp á sjúkrahús. Svo þegar við ætluðum að fara koma okkur heim varð ég alveg brjáluð og vildi vera eftir. En ég jafnaði mig fljótt því mamma og pabbi minntu mig á að ég hitti þau bráðlega aftur því ég fer með þeim bráðum að horfa á Kalla á þakinu og Aron Elvar og Bjarki frændi líka.
Pabbi er byrjaður að grafa holur fyrir pallinum okkar og gengur það ekki áfallalaust. Það endar með því að við þurfum að fá gröfu í þetta því lóðin hérna er frekar stórgrýtt ef svo má að orði komast. Pabbi er búinn að moka og moka og það koma ekkert nema hnullungar upp úr holunum. Svo endaði með því á laugardaginn að hann komst ekkert niður og kom þá í ljós steinn sem er um 2 metrar í þvermál. Svo þetta tekur eitthvað lengri tíma en við heldum
(
Heyrumst síðar, Eva Þórey









Nýlegar athugasemdir