Til hamingju með afmælið Aron Elvar

Hann Aron Elvar frændi minn á afmæli í dag. Til hamingju með daginn.

Annars er allt gott af mér að frétta. Fór loksins í dag í leikskólann en ég er búin að vera veik í vikunni með hósta og hita. Ég missti þar af leiðandi af öskudeginum en sem betur fer var mér alveg sama, ég sagði bara við mömmu “ég fer bara næst”.

Um síðustu helgi fórum við fjölskyldan austur fyrir fjall. Pabbi var að vinna í Mánanum og mamma pínu líka. Ég var hjá ömmu og afa á Eyrarbakka á meðan. Við kíktum líka loksins í sveitina til Eyrúnar og Hákons og sáum litlu prinsessuna þeirra. Hún er ekkert smá mikið krútt og langaði mig helst að eiga hana. En það styttist nú alltaf samt í það að ég eignist systkini og hlakka ég mikið til að verða stóra systir.

Við heyrumst síðar,
kveðja, Eva Þórey

Comments are closed.

Performance Optimization WordPress Plugins by W3 EDGE